Regnbogabraut verður lokað fyrir umferð á góðviðrisdögum í sumar

Rætt var um Regnbogabraut á Húsavík á síðasta fundi skipulags- og framkvæmdaráðs Norðurþings, en þar óskaði sviðsstjóri umhverfissviðs eftir heimild til götulokunar á góðviðrisdögum í sumar.

Ráðið samþykkti lokun hluta Garðarsbrautar, frá Garðarshólma að Samkomuhúsi, á tímabilinu 17. júlí til 4. ágúst 2026.

Regnbogabrautin var fyrst máluð á Garðarsbraut sumarið 2024 og vakti þá mikla athygli meðal bæjarbúa og gesta. Brautin var svo máluð á ný síðasta sumar, árið 2025, og hefur verið vinsæll samkomu- og myndatökustaður í miðbæ Húsavíkur yfir sumartímann. Með lokuninni skapast rými fyrir gangandi vegfarendur, viðburði og mannlíf í miðbænum á þeim dögum sem veður leyfir.

Ljósmynd af vef Norðurþings