Tinna Ósk Óskarsdóttir hefur verið ráðin í starf félagsmálastjóra Norðurþings, en Norðurþing auglýsti starfið í apríl síðastliðinn. Greint var frá ráðningunni á vef sveitarfélagsins í morgun.
Tinna er með BA próf í uppeldis- og menntunarfræði og MA próf í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf frá Háskóla Íslands. Tinna hefur starfað við félagsþjónustu Norðurþings frá árinu 2015, fyrir utan veturinn 2019-2020 þegar hún starfaði sem stuðningsfulltrúi í Borgarhólsskóla. Hjá félagsþjónustunni hefur hún starfað í barnavernd og sem ráðgjafi í félagsþjónustu. Frá árinu 2022 hefur Tinna verið forstöðumaður í málefnum barna og fjölskyldna í Norðurþingi hjá félagsþjónustunni utan eitt ár þegar hún sinnti starfi félagsmálastjóra í fæðingarorlofi hans.
Í tilkynningu frá Norðurþingi kemur fram að Tinna búi yfir víðtækri reynslu á sviði félagsþjónustu og hafi tekið virkan þátt í þróun hennar undanfarin ár, meðal annars með þátttöku í innleiðingu laga um þjónustu í þágu farsældar barna.
Tinna hefur störf sem félagsmálastjóri 1. júlí næstkomandi. Húsavík.com óskar henni óskað velfarnaðar í starfi.

