Framhaldsskólinn á Laugum mannréttindaskóli ársins hjá Amnesty þriðja árið í röð

Framhaldsskólinn á Laugum hefur enn á ný hlotið viðurkenningu Amnesty International sem Mannréttindaskóli ársins og er þetta þriðja árið í röð sem skólinn stendur uppi sem sigurvegari miðað við nemendafjölda í framhaldsskólakeppninni „Þitt nafn bjargar lífi“.

Keppnin er hluti af alþjóðlegri mannréttindaherferð Amnesty International þar sem safnað er undirskriftum til stuðnings einstaklingum og hópum sem orðið hafa fyrir mannréttindabrotum víða um heim. Markmið verkefnisins er meðal annars að hvetja ungt fólk til að láta sig mannréttindi varða og taka virkan þátt í samfélagsmálum.

Í ár söfnuðust alls 4.584 undirskriftir í framhaldsskólakeppninni fyrir málin átta sem voru í brennidepli. Menntaskólinn við Hamrahlíð safnaði flestum undirskriftum í heildina, en Framhaldsskólinn á Laugum sigraði hlutfallslega miðað við nemendafjölda.

„Við erum stolt og ánægð með að vera Mannréttindaskóli ársins þriðja árið í röð,“ segir Sólborg Matthíasdóttir ritari skólans. Hún segir að mikill metnaður hafi verið lagður í verkefnið undanfarin ár, meðal annars með kynningum fyrir nemendur, veggspjöldum, sérstökum kynningarborðum víðs vegar um skólann og öðru hvatningarstarfi.

„Það hefur verið mikill samhugur í nemendahópnum að gera það sem þau geta til að hjálpa,“ segir Sólborg .

Framhaldsskólinn á Laugum hefur verið áberandi í verkefninu undanfarin ár. Árið 2024 söfnuðust alls 5.347 undirskriftir í keppninni og þá sigraði skólinn einnig miðað við nemendafjölda. Sama var uppi á teningnum árið 2023 þegar alls 6.740 undirskriftir söfnuðust í herferðinni og yfir þúsund nemendur um land allt fengu mannréttindafræðslu í tengslum við verkefnið.

Sólborg segir viðurkenningarnar vera mikla hvatningu fyrir nemendur og starfsfólk. Skólinn hefur meðal annars fengið viðurkenningarskjöl frá Amnesty International á hverju ári og einnig sérstakan bikar til marks um árangurinn.

Í ár barst skólanum einnig sérstakt þakkarbréf frá Amnesty á Íslandi þar sem nemendum og starfsfólki var þakkað fyrir framlag sitt og dugnað í þágu mannréttinda undanfarin ár.