Gunnur Árnadóttir er nýr fréttaritari hjá Húsavík.com og mun sinna fréttaflutningi austan Tjörness. Gunnur er búsett á Raufarhöfn og mun fjalla um mannlíf, viðburði og samfélagsmál á svæðinu.
Gunnur flutti aftur heim á Raufarhöfn fyrir tveimur árum, en hún bjó þar ásamt fjölskyldu sinni á fyrstu æviárum sínum, en sleit svo barnsskónum á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði.
„Ég er mikill náttúrusinni og finnst fátt fallegra en Melrakkasléttan með öllu sínu fuglalífi yfir vor og sumar. Ég ákvað að stökkva á vagninn hjá Húsavík.com þegar var auglýst eftir fréttaritara, þar sem ég hef gaman af því að skrifa og segja frá, auk þess sem mig langar að koma því sem gerist í okkar daglega lífi og hinum ýmsu viðburðum í nærumhverfinu á framfæri,“ sagði Gunnur í samtali við Húsavík.com í morgun.
„Húsavík.com er einkarekinn miðill og ótengdur sveitarfélaginu, en þrátt fyrir nafn síðunnar, sem er gamalt, þá viljum við fjalla um Þingeyjarsýslur allar og auðvitað með sérstaka áherslu á samfélagið í Norðurþingi,“ segir Örlygur Hnefill Örlygsson, ritstjóri Húsavík.com. „Með því að fá Gunni í okkar lið er Húsavík.com að tengja Norðurþing enn betur saman með aukinni upplýsingagjöf víðs vegar um sveitarfélagið,“ segir Örlygur.
„Ég hlakka til að takast á við skemmtilegar fréttir og taka viðtöl við áhugavert fólk í Norðurþingi,“ sagði Gunnur að lokum.
Hægt er að senda Gunni hugmyndir að efni á netfangið gunnsarn@gmail.com eða hringja í síma 698 7592.

