Öflug þjónusta og skýr framtíðarsýn fyrir fjölskyldur

Öflug þjónusta og skýr framtíðarsýn fyrir fjölskyldur

Á þessu kjörtímabili höfum við í fjölskylduráði unnið markvisst að því að efla þjónustu við börn, fjölskyldur og íbúa sveitarfélagsins í heild. Sá árangur sem náðst hefur er ekki sjálfgefinn. Hann byggir á skýrri sýn, ábyrgri forgangsröðun og þeirri trú að öflug samfélagsþjónusta skipti sköpum fyrir lífsgæði fólks. Það er því bæði eðlilegt og mikilvægt að gera þessum árangri skil.

Félagsmiðstöð og frístund

Áhersla okkar hefur verið á að styrkja þann grunn sem daglegt líf fjölskyldna byggir á. Frístundastarf hefur verið eflt og félagsmiðstöð í byggingu enda mikilvægur vettvangur fyrir börn og ungmenni. Sumarfrístund er í boði á Húsavík og nú í Öxarfirði, þó hún sé ekki lögbundin þjónusta. Ljóst er að hún skiptir fjölskyldur verulegu máli. Við höfum innleitt morgunmat í Borgarhólsskóla til að stuðla að auknu jafnræði og tryggja að nemendur hefji daginn við betri aðstæður.

Samstarf við íþróttafélög

Jafnframt hefur verið unnið að uppbyggingu leikvalla og markvissri þróun leikskólastarfs, með það að markmiði að bæta enn frekar góða þjónustu. Samþættingarverkefni skóla og íþrótta hafa verið efld í samstarfi við Völsung á Húsavík og Þingeying í Öxarfjarðarhéraði. Með nýjum samningum við þessi félög hefur verið lagður traustur grunnur að áframhaldandi öflugu starfi í þágu barna og ungmenna.

Þessar aðgerðir eru ekki einungis stefnumótun á pappír heldur raunverulegar umbætur sem hafa bein áhrif á daglegt líf fólks. Þær styrkja samfélagið, stuðla að auknu jafnræði og skapa betri skilyrði fyrir fjölskyldur til að dafna.

Aukin lífsgæði

Framundan eru jafnframt metnaðarfull markmið sem miða að því að efla þjónustuna enn frekar. Þar má nefna markmið um gjaldfrjálsa 36 stunda leikskólavist, valfrjálsar heimgreiðslur til 18 mánaða aldurs, tekjutengdan frístundarstyrk fyrir eldri borgara og uppbyggingu þjónustu- eða lífsgæðakjarna sem styrkir þjónustu og eykur lífsgæði.

Til að unnt sé að hrinda þessum markmiðum í framkvæmd er þó eitt lykilatriði; að atvinnulífið standi traustum fótum. Sterkt atvinnulíf er forsenda þess að sveitarfélagið geti viðhaldið þeirri þjónustu sem nú er veitt og þróað hana áfram. Þar liggur grundvöllur áframhaldandi uppbyggingar og velferðar í samfélaginu.

Markviss vinna í atvinnuuppbyggingu skilar árangri eins og dæmin sanna. Nú er mikilvægt að halda áfram á sömu braut, með skýra sýn, ábyrgð og metnað að leiðarljósi.

Bylgja Steingrímsdóttir skipar 2. sæti á lista Framsóknar