Það voru þétt setnir bekkirnir í Húsavíkurkirkju í gærkvöldi þegar Ágúst steig á svið (eða öllu heldur að altarinu) og hélt ásamt hljómsveit sinni útgáfutónleika fyrir nýju plötuna, Hjartað á milljón. Kirkjan var troðfull og sjaldan hefur jafn mikill fögnuður ómað undir kirkjuhvelfingunum og þegar tónleikarnir hófust.
Strax í upphafi náði Ágúst sterkri tengingu við salinn þegar hann flutti lagið „Ekkert hafi breyst“ og rifjaði upp fólk og staði úr samfélaginu sem standa enn traustum fótum. Hann nefndi þar meðal annars Hjálmar Boga á sínum stað í skólanum, Eyju í íþróttahöllinni og hvað það væri mikil gjöf að hér væru hlutir í föstum skorðum. Ágúst var duglegur að þakka því fólki sem hefur mótað hann á lífsleiðinni og feril hans sem listamanns, meðal annars okkar goðsagnakennda gítarkennara Villa, Leif Vilhelm Baldursson.

Milli laga sagði Ágúst einnig frá tilurð laganna, af barnslegri einlægni, og má segja að hann hafi tengt við hvert einasta andlit í hópnum með einlægni sinni.
Hljómburðurinn í kirkjunni var einstaklega góður og þéttur hljómur hljómsveitarinnar naut sín vel í gær. Bros voru á hverju andliti þegar Ágúst flutti „Á leiðinni“ og stemningin varð nær rafmögnuð þegar hann efndi til söngkeppni milli foreldra og barna í salnum. Börnin fóru þar með öruggan sigur af hólmi og uppskáru lof frá söngvaranum sjálfum, og foreldrar fengu það verkefni að verðlauna börnin ísferð að tónleikum loknum.
Það var tilfinningaþrungin stund þegar Ágúst minntist vinar síns og bekkjarbróður, Vignis Más Björnssonar, sem lést fyrir tíu árum í þessum mánuði. Flutningur Ágústs á laginu „Við Gróttu“ eftir Bubba Morthens var bæði fallegur og áhrifamikill og víða mátti sjá tár á hvarmi meðal tónleikagesta.
Þá tók hann einnig „Vegbúann“ eftir KK, sem hann hyggst flytja í Brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar. Tónleikunum lauk á einstaklega fallegan hátt þegar þríburarnir sungu svo saman lokalagið.
Það voru fyrirtækin Gentle Giants og GPG sem styktu tónleikana og buðu öllum bæjarbúum frítt á þá og er það til mikillar fyrirmyndar.





