Markþing kallaði frambjóðendur til samtals um verslun og ferðaþjónustu

Markþing, áður Húsavíkurstofa, stóð í dag fyrir opnum fundi í Safnahúsinu á Húsavík þar sem málefni verslunar og ferðaþjónustu í Norðurþingi voru rædd. Fimm af sex framboðum í sveitarfélaginu sendu fulltrúa á fundinn og svöruðu þau bæði spurningum fundarstjóra og gesta úr sal. Fundinum stýrði Daníel Chandrachur Annisius, stjórnarmaður í Markþingi.

Frambjóðendur voru sammála um mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir samfélagið, þó áherslur væru ólíkar þegar kom að uppbyggingu, markaðssetningu og stuðningi við atvinnulífið.

Aldey Unnar Traustadóttir, oddviti Velferðar, sagði að hún hefði í gegnum þátttöku í málefnum Norðurþings séð sífellt betur hversu mikilvæg ferðaþjónustufyrirtækin væru fyrir alla innviði samfélagsins, sem nýtast svo íbúum hér. Hún ræddi einnig niðurskurð Norðurþings á framlögum til Markþings og sagði að þar hefði verið farin sú leið að „skera lítið niður víða í stað þess að skera mikið hjá fáum.“ Vilji framboðsins væri skýr að auka framlög aftur þegar aðstæður leyfðu.

Ágúst Sigurður Óskarsson frá Lista Samfélagsins sagði mikilvægt að sveitarfélagið gætti sérstaklega að hagsmunum starfandi fyrirtækja. Hann sagðist þekkja atvinnulífið vel hafandi verið formaður Verslunarmannafélags Húsavíkur og lagði ríka áherslu á að frumkrafturinn lægi hjá fyrirtækjunum sjálfum. Þá sagðist hann hryggur yfir niðurskurði til Markþings og vilja frekar „gefa í þegar gefur á bátinn.“ Hann sagði mörg fyrirtæki á svæðinu eiga erfitt uppdráttar eftir langvarandi álag og mikla vinnu eigenda.

Eiður Pétursson fulltrúi Framsóknar sagði Norðurþing búa yfir öflugum og framsýnum fyrirtækjum og að ferðaþjónustan hefði sýnt mikla aðlögunarhæfni við ýmsar krefjandi aðstæður. Hann sagði mestan vaxtarbrodd á austursvæði sveitarfélagsins vera fólginn í ferðaþjónustu og lagði áherslu á að lengja ferðamannatímabilið. Þá nefndi hann sérstaklega mikilvægi þess að stytta vetrarlokun á Fosshótel Húsavík, sem gæti styrkt allan vetrarrekstur á svæðinu. Eiður sagði einnig mikilvægt að halda áfram markaðsstarfi gagnvart skemmtiferðaskipum, en þeirri vinnu var hætt um áramót í kjölfar lokunar PCC og tekjusamdráttar hjá höfnum Norðurþings.

Kjartan Páll Þórarinsson oddviti Samfylkingarinnar sagðist hafa fundið kraftinn í samfélaginu strax þegar hann flutti til Húsavíkur fyrir fimmtán árum. Hann sagði ferðaþjónustuna skipta miklu máli fyrir rekstrarumhverfi bæjarins og nefndi að sveitarfélagið gæti með litlum tilkostnaði og góðu skipulagi til dæmis bætt gönguleiðir og styrkt þannig bæði upplifun gesta og íbúa.

Þorsteinn Snævar Benediktsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og eigandi Húsavík Öl, sagði Markþing vinna mikilvægt starf sem snerist fyrst og fremst um markaðssetningu svæðisins. Hann sagði mikilvægt að halda áfram að fjármagna slíkt starf af krafti þegar færi gæfist. Þorsteinn benti á að samkeppni um hvalaskoðun hefði aukist verulega á Norðurlandi á síðustu árum, meðal annars með mikilli uppbyggingu í Eyjafirði, og því þyrfti að efla vörumerki á borð við „Whale Capital of Iceland“. Þá ræddi hann einnig um tjaldsvæðamál og sagði flottustu tjaldsvæði sveitarfélagsins vera einkarekin, þar sem skýr rekstrarhvati væri til staðar. Hann lagði þó áherslu á að sveitarfélagið þyrfti áfram að byggja upp sín eigin tjaldsvæði í takt við kröfur nútímans, meðal annars með aðstöðu fyrir húsbíla, ferðavagna og rafmagnstengingar.

Opnað var fyrir spurningar úr sal og ljóst er að mörg málefni brenna á ferðaþjónustuaðilum í uppbyggingu ferðaþjónustu í okkar sveitarfélagi.

„Það er hagur okkar allra að hér koma gestir að heimsækja okkur og við erum með einstakan áfangastað í höndunum. Markþing þakkar frambjóðendum og þátttakendum fyrir góðan fund og hlakkar til að eiga frekara samtal og samstarf um þessa mikilvægu atvinnugrein í okkar samfélagi,“ sagði Daníel í samtali við vefinn að fundi loknum.