Það hefur ríkt mikil gleði í Borgarhólsskóla í dag, en í gærköldi bar skólinn sigur úr býtum í Fiðringi á Norðurlandi, sem fram fór í Hofi á Akureyri í fimmta sinn. Það voru 9 skólar tóku þátt í keppninni að þessu sinni en Borgarhólsskóli sigraði með atriðið „Ég er ekki lygari“. Þetta er í annað sinn sem Húsvíkingar vinna keppnina, en Borgarhólsskóli sigraði einnig árið 2024 og hafnaði í þriðja sæti á síðasta ári.
Atriðið vakti mikla athygli fyrir sterkan og áhrifamikinn boðskap um kynferðisofbeldi og hvernig samfélagið bregst oft á tíðum þolendum kynferðisofbeldis.
Blaðamaður Húsavík.com náði tali af Karen Erludóttur, leiðbeinanda hópsins, þegar hún var á heimleið með nemendum í gærkvöldi. Það reyndist þó ekki auðvelt að heyra í henni fyrir fagnaðarlátunum í rútunni.

„Við byrjuðum að æfa fyrir keppnina í byrjun annar. Þá komu krakkarnir með allskonar uppástungur að viðfangsefni atriðisins, en eftir samtöl um útfærslur og með lýðræðislegri kosningu enduðu krakkarnir á að vilja fjalla um stelpu sem fer í party með vinum sínum og verður nauðgað þar af strák sem hún taldi einnig vera vin sinn,“ sagði Karen.
Hún segir að nemendurnir hafi viljað sýna þá erfiðu stöðu sem þolendur standa oft frammi fyrir þegar þeir stíga fram.
„Hún stígur fram og segir frá en fólk annað hvort trúir henni ekki eða kennir henni um að hafa verið að „biðja um þetta“ með einum hætti eða öðrum. Atriðið endar svo á að stelpan stendur ein eftir á sviðinu því allir hafa yfirgefið hana. Hún reynir að halda áfram að berjast en akkúrat á því augnabliki sem hún er að gefast upp stíga aðrir þolendur á svið og grípa hana.“

Karen segir að þar hafi nemendurnir viljað sýna mikilvægi stuðnings og samstöðu.
„Þær sýna að þær standi með henni og trúi henni og endar því atriðið á smá vonarglætu sem er þó á sama tíma frekar vond að fylgjast með. Því það á ekki að þurfa að vera þolandi líka til að geta sýnt stuðning.“
Að hennar sögn sóttu nemendur innblástur í raunverulegar sögur og samfélagsumræðu síðustu ára.
„Krakkarnir fengu innblástur frá sögum annarra kvenna, umræðunni í samfélaginu um kynferðisofbeldi og sérstaklega hvernig þolendum er oft ekki trúað. Þeim fannst mikilvægt að varpa ljósi á þá reynslu frá sjónarhorni þolanda og sýna líka hversu miklu máli stuðningur skiptir. Þau vilja að samfélagið geri betur og vona að þetta muni vekja einhverja til umhugsunar.“
Karen segir hópinn hafa unnið atriðið nánast frá grunni sjálf.
„Þau sömdu allan dansinn sjálf, skrifuðu handritið að atriðinu, redduðu búningum og máluðu sjálf á þá, hönnuðu og sáu um lýsinguna á sviðinu og svona mætti lengi telja. Þau eru búin að vera hreint út sagt ótrúleg í þessu ferli og eiga þennan sigur svo sannarlega skilið!“
Sigurinn hafi svo losað um mikla spennu eftir vikur af stífum undirbúningi.
„Spennufallið var slíkt eftir þrotlausa vinnu undanfarnar vikur að við grétum öll og hlógum saman á sviðinu eftir að vinningshafinn var tilkynntur. Héldum svo áfram að gráta og hlæja til skiptis á leiðinni baksviðs en vorum rétt nýbúin að jafna okkur áður en við stigum aftur í rútuna til að fara heim. Stemmingin er semsagt fyrst og fremst frábær, en tilfinningaþrungin á sama tíma. Á góðan hátt!“


