Ferðaþjónusta er kappleikur milli landa. Þetta er einfaldur sannleikur sem stjórnvöld hvers tíma virðast oft gleyma.
Ferðaþjónusta, sérstaklega móttaka skemmtiferðaskipa kringum landið, er grein sem vinnur langt fram í tímann og þarf að búa við stöðugleika.
Á síðustu árum hefur Ísland notið ákveðinnar sérstöðu. Þegar innrás Rússa í Úkraínu hófst hurfu skemmtiferðaskip frá áfangastöðum við Eystrasaltið; Sankti Pétursborg, Stokkhólmi og Helsinki. Í kjölfarið jókst straumur farþega hingað til lands verulega.
Á sama tíma og samkeppnin er að harðna, hafa íslensk stjórnvöld verið að gera það sem samkeppnisþjóðir okkar forðast: Að breyta leikreglunum í miðjum leik. Tíðar og ófyrirsjáanlegar breytingar á gjöldum og sköttum senda skýr skilaboð út á markaðinn: Hér ríkir óvissa og hér skortir á fagmennsku.
Í ferðaþjónustu er óvissa fljót að skemma gott markaðsstarf og á sama tíma hafa og stjórnvöld hafa lagt stein í götu ferðaþjónustu á landsbyggðum hafa stór áföll hjá höfnum Norðurþings orðið til þess að sveitarfélagið hefur alfarið hætt markaðssetningu hafna sinna, þegar mest ástæða væri til að kynna þær, enda baráttan mun harðari. Leiðarahöfundur leiddi kynningarstarf fyrir hafnir okkar um tveggja ára skeið og voru hafnir Norðurþings þær einu á Íslandi sem bættu við sig komum árið 2025, bæði á Húsavík og Raufarhöfn.
Skemmtiferðaskip bókast ekki með nokkurra mánaða fyrirvara, heldur oft 1-3 ár fram í tímann. Þegar ákvarðanir eru teknar um siglingaleiðir horfa skipafélög til stöðugleika, fyrirsjáanleika og samkeppnishæfni. Ef Ísland stenst ekki þá samkeppni, fara skipin einfaldlega annað.
Við þurfum ekki að leita langt til að sjá dæmin. Þar sem of hart var gengið fram í gjaldtöku hefur markaðurinn brugðist hratt við og það tekur mörg ár að vinna hann til baka. Það er sú staða sem við erum að vinna úr í dag.
Við á landsbyggðunum finnum þetta sérstaklega vel. Fyrir staði eins og Húsavík eru skipakomur ekki bara aukatekjur hafna heldur raunveruleg undirstaða undir fjölbreyttu atvinnulífi. Hver dagur með skipi skiptir máli. Hver ákvörðun sem dregur úr komum hefur áhrif á heila keðju, frá hafnarstarfsemi til safna, veitingastaða og afþreyingar.
Það er ekkert sjálfgefið að þessi viðskipti haldist.
Ferðaþjónusta er kappleikur. Núna erum við ekki bara að spila illa, við erum farin sækja að okkar eigin marki. Gerum betur.

