Húsavík er Hollywood norðursins: Ní­ræð stjarna mætti á frumsýninguna í limmósínu

Húsfyllir var í kvikmyndaklúbbnum Fjalakettinum á Húsavík í gærkvöldi þegar tvær nýjar heimildamyndir eftir Stefán Jón Hafstein og Óskar Pál Sveinsson voru frumsýndar. Kvöldið varð sannkölluð hátíð safna, sagna og fólksins sem hefur varið ævinni í að varðveita menningararf rétt sunnan heimskautsbaugs.

Stjarna fyrri myndarinnar er Aðalgeir Egilsson safnstjóri og sagnamaður á Mánárbakka, sem fagnaði 90 ára afmæli sínu í gær. Honum var komið rækilega á óvart þegar limmósína sótti hann, tók hann á ísrúnt til Húsavíkur og ók honum síðan á frumsýninguna í Fjalakettinum. Þar tók þéttsetinn salur á móti afmælisbarninu og sagnamanninum, sem hefur um áratugaskeið byggt upp einstakt minjasafn á Tjörnesi.

Myndin um Aðalgeir hafði verið forsýnd í Sólvangi, félagsheimili Tjörnesinga, fyrr um daginn í tilefni afmælisins. Um kvöldið fór síðan fram fyrsta opinbera sýning hennar, ásamt nýrri heimildamynd um Safnasafnið á Svalbarðseyri.

Í myndinni um Mánárbakka er gengið með Aðalgeiri um gamla gula húsið Þórshamar og torfbæinn í túninu. Þar segir hann frá fjölbreyttum safngripum, allt frá fyrsta eldspýtustokknum sem hann eignaðist og opnaði glugga ungs sveitapilts út í heim, til sjaldgæfra konungsgripa og gamalla handrita. Aðalgeir er ekki síður þekktur fyrir frásagnargáfu sína en ástríðu fyrir söfnun, auk þess sem hann sinnti veðurathugunum á Tjörnesi í 60 ár og þekkja margir nafnið Mánárbakki úr veðurskeytum á gömlu gufunni.

„Hérna týnist ekki tíminn, hann er vandlega varðveittur af einlægum áhuga,“ sagði Stefán Jón Hafstein um safnið. Myndin er bæði persónuleg saga af einstökum safnara og óður til manns sem hefur bjargað ómetanlegri menningararfleifð fyrir komandi kynslóðir.

Seinni mynd kvöldsins fjallar um Safnasafnið á Svalbarðseyri, höfuðsetur alþýðulistar á Íslandi, sem fagnaði nýverið 30 ára afmæli sínu. Þar fá áhorfendur innsýn í hugsjónir og ævistarf frumkvöðlanna Níelsar Hafstein og Magnhildar Sigurðardóttur, sem hafa skapað safni sínu einstakan sess í íslensku menningarlífi.

Myndirnar sýna hvor með sínum hætti hvernig söfn verða til fyrir ástríðu, þrautseigju og einlægan áhuga einstaklinga. Þótt safngripirnir séu í aðalhlutverki eru það sögurnar og fólkið að baki þeim sem gefa myndunum tveimur hjarta sitt.

Stefán Jón Hafstein stýrir frásögn og viðtölum myndanna en Óskar Páll Sveinsson annast myndatöku og klippingu. Myndirnar eru listilega vel gerðar og fallegar. Takk fyrir komuna. Meðfylgjandi ljósmyndir tók Elvar Örn Egilsson.

Fjalakötturinn var þétt setinn á frumsýningu í gærkvöldi.
Stjarna myndarinnar, sagnamaðurinn Aðalgeir Egilsson, mætti á limmósínu til frumsýningarinnar.
Vinirnir Stefán Jón og Aðalgeir.

Texti: Örlygur Hnefill Örlygsson
Ljósmyndir: Elvar Örn Egilsson

Í samræmi við ritstjórnarstefnu Húsavík.com skal tekið fram að Fjalakötturinn er rekinn af sömu aðilum og fréttavefurinn Húsavík.com