Við þurfum að horfa fram á við þegar kemur að þjónustu við eldri íbúa Norðurþings. Í Fjölskylduráði Norðurþings hef ég því lagt fram tillögu um að stofnaður verði starfshópur sem fari yfir þjónustu, húsnæðismál og aðra mikilvæga þætti sem varða stöðu og þjónustu við eldri íbúa sveitarfélagsins og leggj fram tillögur um framtíðarþróun málaflokksins.
Í Norðurþingi, líkt og annars staðar á landinu, mun fjölga í hópi eldri íbúa á næstu árum. Það kallar á að við séum vel undirbúin og hugsum þjónustuna út frá fólkinu okkar og til lengri tíma. Markmiðið er ekki aðeins að bregðast við þeim þörfum sem eru uppi í dag, heldur að skapa skýra framtíðarsýn um hvernig Norðurþing geti tryggt öfluga, samþætta og skilvirka þjónustu við eldri íbúa.
Heildarsýn um þjónustu og búsetumál
Tillaga er um að fara yfir þá þjónustu sem Norðurþing veitir í dag, þjónustu félagsþjónustunnar t.d. heimaþjónustu, félagslga ráðgjölf og aðra þjónustu, starfsemi og hlutverk Dvalarheimilis aldraðra sf., dagdvöl/dagþjálfun, rekstur og þróun Hvamms og íbúðir fyrir aldraða.
Eitt af meginmarkmiðunum er að skoða hvernig hægt sé að samþætta þjónustu betur. Þar er sérstaklega mikilvægt að horfa til frekara samstarfs við Dvalarheimili aldraðra sf., Heilbrigðisstofnun Norðurlands, félög eldri borgara og aðra aðila sem koma að þjónustu við eldri íbúa.
Gott að eldast – tækifæri til að þróa þjónustuna
Aðgerðaráætlun stjórnvalda um þjónustu við eldra fólk árin 2027-2027 hefur lítið sem ekkert komið til skoðunar og þróunar á vettvangi Norðurþings. Við í Norðurþingi þurfum að gefa þessari áætlun gaum, máta hana við okkar aðstæður og nýta þar sem hagkvæmt er og styður við heilsu og velferð eldri hópsins. Áætlunin leggur meðal annars áherslu á samþættingu þjónustu og einfalda, t.d. heimaþjónustu, heimahjúkrun og heimaþjálfun, með það að markmiði að fólk geti búið sem lengst sjálfstætt og við góð lífsgæði. Þjónustan þarf að vera aðgengileg, sveigjanleg og skipulögð. Þannig skipulag felur í sér að eldri einstaklingar, aðstandendur og fagfólk þurfa einungis að leita á einn stað varðandi þjónustuna heim, heimaþjónustu, heimahjúkrun og heimaendurhæfingu og fleiri þjónustuþætti. Með aðgerðaráætluninni hefur Ríkið lýst sig reiðubúið til samstarfs.
Eldri íbúar eiga að hafa rödd í stefnumótuninni
Markmið tillögunnar eru:
- að móta framtíðarsýn um þjónustu við eldri íbúa Norðurþings,
- að yfirfara núverandi þjónustu og greina hvar megi gera betur,
- að skoða hvernig samþætta megi heimaþjónustu, heimahjúkrun og heimaþjálfun,
- að nýta betur mögulega samlegð milli sveitarfélagsins og annarra þjónustuaðila,
- að undirbúa nauðsynlegar breytingar í tengslum við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis HSN á Húsavík,
- og síðast en ekki síst að hlusta á eldri íbúa sjálfa og taka mið af reynslu þeirra, þörfum og óskum.
Eldri íbúar á Húsavík, Kópaskeri, Raufarhöfn og úr dreifbýlinu eiga að koma að samtalinu og hafa áhrif á hvernig þjónustan þróast. Við þurfum að hlusta á fólk sem þekkir þjónustuna af eigin raun og nýta þá þekkingu og reynslu skipulagningu og ákvarðanatöku.
Kostnaðarsöm þjónusta fyrir engan
Í Norðurþingi eru nokkur dæmi þar sem raddir eldri hópsins hafa verið hunsaðar. Það hefur orðið til þess að þjónustan verður ómarkviss og notendur upplifa hana á neikvæðan hátt. Dæmi um þetta er úthlutun íbúða fyrir aldraða. Fjöldi umsækjenda hefur upplifað að útleiguferlið sem óljóst og uppgjör við leigulok ógagnsætt og taka of langan tíma.
Einnig eru dæmi þess að starfsemi og þjónustu er sett af stað, án þess að nokkur hafi óskað eftir henni. Dæmi um þetta er félagsstarf sem sett var á laggirnar í Grunnskólanum á Kópaskeri og Grunnskólanum á Raufarhöfn. Stjórnsýsla Norðurþings hóf þá starfsemi í maí 2026 og fyrsta opnun var í september 2026. Nær enginn sækir þessa þjónustu. Kostnaður skiptir milljónum.
Eldra fólkið á Kópaskeri hefur haft góða þjónustu í nýlegu sérbyggðri félagsaðstöðu fyrir eldri íbúa svæðisins sem hefur verið rekin af myndarbrag af DA sf.. Norðurþing á 75% í DA sf.. Því var önnur starfsemi fyrir þennan hóp óþörf á Kópaskeri. Þar eru notendur fáir og vilja halda hópinn á einum stað.
Á Raufarhöfn hefur hjarta félagsstarfs aldraða verið í Breiðabliki, þar sem FEBR og notendur hafa komið sér upp góðri aðstöðu og skipulögðu starfi. Þau hafa kallað eftir stuðningi við starfsemi sína, m.a. faglega. Á Raufarhöfn á það sama við og á Kópaskeri, hópurinn er fámennur og vill fá að vera ein heild.
Miklar breytingar framundan
HSN – Hvammur og Skógarbrekka stefna að því að taka í notkun nýtt hjúkrunarheimili í apríl 2026. Þá losnar um 5.000 fermetra fasteignir sveitarfélagsins í Hvammi. Matsverð eignarinnar er 2.600 milljónir.
Gríðarlega mikilvægt er að vanda vel til þróunar þeirra fasteignar og starfsemi sem ætlað er að hýsa á því svæði. Jafnframt er mikilvægt að taka strax til hendinni og láta húsið standa ónotað svo misserum skiptir. Ónotaðar húseignir sem ekki fá viðhald er hættara við ótímabærum varanlegum skemmdum.
Verkefni Fjölskylduráðs, ásamt Sveitarstjórn og öðrum nefnum er móta stefnu og koma í verk nauðsynlegum framkvæmdum, í samvinnu við sameignarfélag sveitarfélaganna – DA sf..
Mál þetta hefur lítið sem ekkert verið rætt í stjórnsýslu Norðurþings. Líklega mun uppbygging tefjast með tilheyrandi kostnaði sem lendir á skattgreiðendum í Norðurþingi.
Góð, hæfandi þjónusta = virðing
Góð þjónusta við eldri íbúa er ekki eingöngu velferðarmál. Hún snýst um lífsgæði, sjálfstæði, öryggi og virðingu. Með markvissri stefnumótun og skýrri stefnum og aðgerðum getum við undirbúið Norðurþing fyrir framtíðina og tryggt að sveitarfélagið verði góður staður til að eldast á – hvort sem fólk býr á Húsavík, Kópaskeri, Raufarhöfn eða í dreifbýlinu. Eldri íbúar eru eftirsóttir íbúar, greiða háa skatta, virkir neytendur og þátttakendur í samfélaginu. Því eigum við að gera vel við þá og laða í Norðurþing.
Tillaga fulltrúa M-Lista Samfélagsins, sem verður til umfjöllunar í Fjölskylduráði og síðan Sveitarstjórn, og undirritaður hefur væntingar um faglega vandaða umfjöllun um þennan mikilvæga málaflokk. Tillagan hefur einnig verið send til umfjöllunar í Öldrunarráði Norðurþings.
Bestu kveðjur!
Ágúst Sigurður Óskarsson, fulltrúi M-Lista Samfélagsins
Tillaga Ágústs til Fjölskylduráðs og Sveitarstjórnar Norðurþings:
Málefni og þjónusta við eldri borgara – stofnun starfshóps
Fulltrúi M – Lista Samfélagsins leggur til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir starfshópi sem yfirfari þjónustu, húsnæðismál og aðra þætti sem varða þjónustu við eldri borgara og komi með tillögur um þróun í málaflokknum.
Greinargerð og umfjöllun:
Verkefni starfshópsins verður að yfirfara núverandi þjónustu Norðurþings í málaflokknum sem varða þjónustu við eldri íbúa sveitarfélagsins, m.a. hjá félagsþjónustu, Dvalarheimili aldraðra sf. (dagdvöl/dagþjálfun, íbúðir fyrir aldraða), núverandi rekstur og frekari þróun fasteigna (aðstöðu), samstarf við hagaðila s.s. félög eldri borgara á svæðinu, Dvalarheimili aldraðra sf. og Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
Starfshópurinn leggur tillögur sínar fyrir Fjölskylduráð Norðurþings og eftir atvikum aðrar nefndir, til frekari umfjöllunar og stefnumótunar.
Í starfi sínu skal starfshópurinn m.a. hafa til hliðsjónar eftirfarandi þætti:
- Þróa núverandi þjónustu með hliðsjón af fjölgun í hópi eldri íbúa Norðurþings og þróun í málaflokknum.
- Nýta mögulega samlegð með öðrum þjónustuveitendum, öðrum stofnunum og þjónustueiningum hjá Norðurþingi, félögum eldri borgara, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, öðrum þjónustuhópum og fleiri aðilum.
- Skoða leiðir til að samþætta þjónustu og starf fyrir aldraða í Norðurþing við Aðgerðaráætlun stjórnvalda um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023-2027 – sem gengur undir nafninu, Gott að eldast, m.a. heimaþjónustu, heimahjúkrun og heimaþjálfun.
- Skipuleggja nauðsynlegar breytingar og þróun á þjónustunni samhliða uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis HSN á Húsavík.
- Í starfinu skal haft samstarf við eldri íbúa í sveitarfélaginu, á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn. Nýta reynslu þeirra og kalla eftir þörfum þeirra og óskum.

