Luna Annisius Askelöf sigraði piparkökuhúsakeppni jólabæjarins

Luna Annisius Askelöf bar sigur úr býtum í piparkökuhúsakeppni Jólabæjarins míns sem fram fór í Safnahúsinu á Húsavík í gær og í dag. Úrslit keppninnar voru tilkynnt síðdegis í dag og það voru Árni Pétur og Dagný frá Safnahúsinu sem tilkynntu sigurvegarann.

Luna fór óhefðbundna leið í útfærslu sinni og smíðaði JBL-hátalara úr piparkökum í stað hefðbundins piparkökuhúss.

Árni Pétur, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, lýsti yfir mikilli ánægju með þátttöku í viðburðum Jólabæjarins, fjölda seljenda og góðan gestagang í Safnahúsinu þessa tvo daga, þegar Húsavík.com náði tali af honum síðdegis, en hann var þá á leið á svið til að draga vinningshafa í styrktarhappdrætti Candy Bar Norðurlands.