Elfar Árni skoraði tvívegis í mikilvægum sigri Völsungs á föstudag

Völsungur vann mikilvægan 2–0 sigur á Grindavík þegar liðin mættust á GPG-vellinum á Húsavík í 15. umferð Lengjudeildar karla á föstudag. Með sigrinum bættu Húsvíkingar dýrmætum þremur stigum í sarpinn. Elfar Árni Aðalsteinsson var maður leiksins en hann skoraði bæði mörk Völsungs. Fyrra markið kom strax á 6. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir góða fyrirgjöf frá Tómasi Bjarna Baldurssyni. Grindvíkingar voru nálægt því að jafna snemma í þeim síðari þegar skalli þeirra hafnaði í stönginni.

Á 74. mínútu innsiglaði Elfar Árni síðan sigurinn með glæsilegu marki. Dagbjartur Búi Davíðsson sendi hann inn fyrir vörn Grindavíkur og Elfar lyfti boltanum af öryggi yfir markvörð gestanna og í netið.

Sigurinn kemur sér afar vel fyrir Völsung sem heldur áfram baráttunni fyrir áframhaldandi sæti í Lengjudeildinni, en Grindvíkingar misstu af tækifæri til að saxa á bilið upp í efri hluta deildarinnar.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Elfar Árna ásamt umboðsmanni sínum skrifa undir við Völsung þegar hann snéri heim fyrir rúmu ári síðan.