Forseti Íslands mætti á Mærudaga og fór í hvalaskoðun: „Hjartans þakkir, Húsavík“

Mærudagar voru settir með hátíðlegum hætti á Húsavík í gær að viðstöddum forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur, og eiginmanni hennar, Birni Skúlasyni. Heimsókn forsetahjónanna var fjölbreytt en þau tóku þátt í dagskrá víðs vegar um bæinn og kynntust mannlífi og atvinnulífi á Húsavík.

Á meðan á heimsókninni stóð heimsóttu þau meðal annars eldri borgara, hittu fulltrúa atvinnu- og menningarlífsins, fóru í hvalaskoðun með Gentle Giants og nutu þeirrar einstöku náttúru sem Húsavík hefur upp á að bjóða.

Halla Tómasdóttir forseti lýsti ánægju sinni með heimsóknina í færslu á samfélagsmiðlum:

„Við hjónin áttum dýrmætan dag með íbúum við setningu Mærudaga, heimsóttum eldri borgara, hittum fólk úr atvinnu- og menningarlífinu, fórum í hvalaskoðun og fengum að upplifa þá einstöku náttúru sem gerir Húsavík að einum sérstæðasta stað landsins.“

Hún lauk færslunni með þessum orðum:

„Hjartans þakkir, Húsavík, fyrir gestrisnina og gleðina og dag sem við munum lengi búa að.“