Séra Sighvatur Karlsson, sem þjónaði sem sóknarprestur Húsavíkursóknar um áratugaskeið og er mörgum Húsvíkingum vel kunnur, opnar málverkasýningu í Safnahúsinu á Húsavík í dag, fimmtudaginn 23. júlí klukkan 14.
Sýningin er haldin í tilefni af 40 ára vígsluafmæli Sighvats til prests og verða þar sýnd fjölbreytt málverk eftir hann. Gestum verður boðið upp á léttar veitingar og er öll velkomin.
Þótt Sighvatur sé þekktastur fyrir störf sín innan kirkjunnar hefur hann um árabil sinnt myndlist af miklum krafti. Hann hefur stundað nám í Myndlistaskóla Kópavogs í frjálsri málun og blandaðri tækni og vinnur bæði abstraktverk og landslagsmyndir, þar sem íslensk náttúra er gjarnan helsta viðfangsefnið.
Sighvatur hefur áður haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði á Húsavík og á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2020 hélt hann meðal annars sýningu í Seltjarnarneskirkju þar sem hann sýndi málverk sem byggð voru á Davíðssálmum, en þau voru unnin undir áhrifum tónlistar Antoníns Dvořáks.
Séra Sighvatur Karlsson fæddist í Reykjavík árið 1959 og hóf störf sem sóknarprestur á Húsavík árið 1986 og fagnar því 40 ára vígsluafmæli hér. Hann starfar nú sem prestur við Hafnarfjarðarkirkju í hlutastarfi, samhliða myndlistinni.
Sama dag opna listakonurnar Jónasína Arnbjörnsdóttir og Gunnhildur Ingólfsdóttir sýninguna ATVIK í listasal safnsins á þriðju hæð, en nánar verður sagt frá sýningu þeirra hér á vefnum í vikunni.

