Mærudagar fara fram á Húsavík um helgina með fjölbreyttri dagskrá þar sem sérstök áhersla er lögð á fjölskyldur, börn og ungmenni. Tónlist, íþróttir, skrúðganga, barnaskemmtun og fjöldi ókeypis viðburða verða meðal þess sem gestum býðst. Húsavík.com ræddi við Guðrúnu Huld Gunnarsdóttur, sem segir markmiðið að skapa hátíð fyrir alla aldurshópa. Dagskrána í heild má sjá neðan við fréttina.
„Við reynum sérstaklega að horfa til norðlensks og húsvísks tónlistarfólks,“ segir Guðrún. Meðal tónlistaratriða verða bryggjusöngur með Elvari og Guðna, söngsyrpa úr verðlaunasýningu Leikfélags Húsavíkur á Rocky Horror, auk tónleika með Aron Can, Bríeti, Big Bandi Eyþórs og Tinnu Óðins. Fyrir yngstu gestina verður metnaðarfull barnadagskrá með dansatriðum, karamellukasti, Hvolpasveitinni og Aron Can sem flytur tvö lög fyrir börnin. „Það er gaman fyrir yngstu kynslóðina að fá að hitta hetjurnar sínar úr Hvolpasveitinni,“ segir Guðrún.
Setningarathöfn hátíðarinnar fer fram á föstudag að loknum leik á GPG-vellinum. Þá verður andlitsmálun áður en skrúðganga heldur niður á hafnarstétt þar sem tilkynnt verður um listamann Norðurþings, verðlaun afhent fyrir best skreytta húsið og besta búninginn í skrúðgöngunni og Björnis Brunabangsi sér um skemmtunina. Auk þess verður boðið upp á fjölbreytta íþróttaviðburði, meðal annars pílumót, strandblak, golfmót, tölvuleikjamót og hið vinsæla bjórhlaup. „Við leggjum mikla áherslu á ókeypis viðburði og vil ég þakka öllum fyrirtækjum, sjálfboðaliðum og þeim sem leggja hönd á plóg við að gera hátíðina að veruleika. Ég vona að allir skemmti sér vel og fallega á Húsavík um helgina,“ segir Guðrún Huld.









