Lokað fyrir umferð um miðhafnarsvæðið yfir Mærudaga

Mærudagar fara fram á Húsavík nú um helgina og verður hátíðin hin glæsilegasta í ár. Dagskrá Mærudaga var birt hér á Húsavík.com í vikunnni Vegna hátíðarhalda og dagskrár verður lokað fyrir umferð um miðhafnarsvæðið frá föstudegi til sunnudags. Á vef Norðurþings segir svo frá:

Vegna Mærudaga á Húsavík helgina 24.-26. júlí þarf að loka götum á hafnasvæðinu sem hér segir: Frá föstudeginum 25. júlí kl. 12 til sunnudagsins 27. júlí kl. 7, á Hafnarstétt, frá Naustagarði að Fiskifjöru