Mikil eftirvænting var fyrir tónleikum húsavísku hljómsveitarinnar Innvortis sem fóru fram á Húsavík Öl í kvöld. Röð sem taldi fleiri tugi metra hafði myndast löngu áður en húsið opnaði sem er óvenjuleg sjón á tónleikum hér um slóðir. Um er að ræða fyrstu tónleika Innvortis með upprunalegu meðlimunum síðan árið 2007. Þó er sú undantekning á að Árni Þór Theódórsson spilar á bassa en upprunalegur bassaleikari sveitarinnar var Brynjúlfur Sigurðsson. Aðrir meðlimir eru Arngrímur Arnarson, Björgvin Sigurðsson og Snæbjörn Ragnarsson. Hljómsveitin mun einnig spila annaðkvöld, föstudag kl. 21.
Röð sem taldi fleiri tugi metra fyrir tónleika Innvortis

