Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan farþega um borð í skemmtiferðaskip undan Húsavík

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöld vegna alvarlegs slyss um borð í skemmtiferðaskipi sem statt var um 13 sjómílur norður af Húsavík. Tilkynning um atvikið barst Landhelgisgæslunni um tuttugu mínútur fyrir klukkan níu og var þyrluáhöfn send á vettvang.

Vel gekk að hífa hinn slasaða um borð í þyrluna, enda voru aðstæður á vettvangi góðar. Skömmu fyrir klukkan ellefu var hann fluttur með þyrlunni á Sjúkrahúsið á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar er líðan hans stöðug.

Samkvæmt upplýsingum frá MarineTraffic var skemmtiferðaskipið Viking Mars statt skammt norðan Húsavíkur þegar slysið varð. Skipið, sem er 227 metra langt og tekur allt að 930 farþega, var á leið frá Akureyri til Seyðisfjarðar þegar það sneri við um níuleytið og sigldi í átt að Húsavík á meðan björgunaraðgerðir stóðu yfir.

Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg voru björgunarsveitir ekki kallaðar út vegna atviksins.