Bergþór Bjarnason verður næsti sveitarstjóri Norðurþings samkvæmt samkomulagi sem nýr meirihluti sveitarstjórnar hefur náð við hann. Bergþór, sem nú gegnir starfi fjármálastjóra sveitarfélagsins, tekur við embættinu 15. júní næstkomandi.
Greint var frá ráðningunni í tölvupósti sem Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti D-lista, sendi starfsfólki Norðurþings í morgun og staðfesti hún það í samtali við Húsavík.com. Samningur við Bergþór verður formlega undirritaður að loknum fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar þann 11. júní.
Í samtali við Húsavík.com í morgun sagðist Bergþór taka verkefninu með mikilli tilhlökkun.
„Ég er fullur tilhlökkunar að taka við starfi sveitarstjóra Norðurþings. Ég þekki sveitarfélagið vel og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir um þessar mundir. Það er mikilvægt að vinna af heilindum fyrir alla íbúa í fjölkjarna sveitarfélagi eins og Norðurþingi, hlusta vel eftir hugmyndum og sýna þörfum fólks einlægan áhuga.“
Hann segist jafnframt vera þakklátur fyrir það traust sem honum er sýnt.
„Ég er auðmjúkur og þakklátur fyrir traustið og ætla að leggja mig allan fram í þeim verkefnum sem framundan eru og þau eru mörg krefjandi.“
Bergþór bendir á að tækifærin séu fjölmörg í sveitarfélaginu.
„Í Norðurþingi er mikill mannauður og fullt af tækifærum sem við þurfum að nýta til að gera gott samfélag enn betra og standa undir nútíma kröfum um aukna þjónustu til handa íbúum sveitarfélagsins.“
Bergþór hefur starfað sem fjármálastjóri og staðgengill sveitarstjóra Norðurþings undanfarin fjögur ár. Þar áður starfaði hann hjá Landsbankanum í 14 ár, meðal annars sem útibússtjóri á Húsavík, Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópaskeri í ellefu ár.
Hann er með BS-gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og MLM-gráðu í forystu og stjórnun frá sama skóla. Þá er hann vottaður fjármálaráðgjafi og vottaður stjórnarmaður.

