Tónasmiðjan heldur glæsilega afmælistónleika á Fosshótel Húsavík í kvöld, mánudaginn 25. maí, þar sem fagnað verður tuttugu ára starfsafmæli.
Húsavík.com ræddi við Elvar Bragason, forsvarsmann Tónasmiðjunnar, rétt fyrir tónleikana í kvöld.
„Stemningin er góð, við erum að fara í rennsli eftir nokkrar mínútur og þetta verður stórkostlegt kvöld. Rokk og ballöður og allt þar á milli, fallegt og hugljúft kvöld, í bland við alvöru rokk og ról,“ sagði Elvar.
Að sögn Elvars verða um 30 manns á sviðinu í kvöld og flytjendur á öllum aldri. „Hér er ungt fólk á öllum aldri, yngstu flytjendurnir eru 7 ára.“
Í fréttatilkynningu frá Tónasmiðjunni kemur fram að um sé að ræða magnaða tónleikasýningu þar sem fram koma einsöngvarar, bakraddir, hljómsveit og heiðursgestir.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og verður miðasala við hurðina. „Við hlökkum til að sjá alla meðan húsrúm leyfir,“ sagði Elvar að lokum.

