Steini og Helga stækka Húsavík Öl: „Þarna opnast möguleiki til að halda flotta tónleika og ýmiskonar viðburði“

Hjónin Þorsteinn Snævar Benediktsson og Helga Dagný Einarsdóttir standa nú í stórræðum við stækkun gestastofu brugghússins Húsavík Öl.

„Við erum að stækka gestastofuna okkar og útbúa sal sem hentar betur til viðburða og getum nú tekið á móti mun fleiri gestum, stærðin hefur svolítið háð okkur,“ segir Þorsteinn Snævar Benediktsson, bruggmeistari Húsavík Öl, í samtali við Húsavík.com.

Að sögn Þorsteins er stefnt að því að opna nýja rýmið sem fyrst og horfa þau til að fá leyfi fyrir á bilinu 70 til 100 gesti. Með breytingunum skapast nýir möguleikar fyrir menningar- og tónleikahald á staðnum.

„Þarna opnast möguleiki til að halda flotta tónleika og ýmiskonar viðburði. Við vorum að fá samþykki allra húseigenda til að stækka pallinn,“ segir Þorsteinn og mun hann þá ná framan við nýja inngöngu sem bætist við sunnan við núverandi inngang á Húsavík Öl.

Húsavík Öl hefur síðustu ár skapað sér sterkt orðspor meðal íslenskra handverksbrugghúsa. Þorsteinn hefur hlotið fjölda verðlauna bæði hér heima og erlendis fyrir bjóra sína og hefur verið meðal fremstu bruggara landsins um árabil.

Með tilkomu nýja rýmisins stækkar gestastofa Húsavík Öl verulega og getur þá tekið á móti 70 til 100 gestum. Ljósmynd: Helga Dagný