Á aðalfundi Rauði krossinn á Íslandi sem fór fram á Grand Hótel Reykjavík fyrr í mánuðinum var Halldór Valdimarsson heiðraður fyrir góð störf í þágu félagsins.
Í umsögn um Halldór sagði meðal annars: „Halldór hóf sitt sjálfboðastarf í stjórn hjá Húsavíkurdeild árið 2012 sem síðan varð Þingeyjarsýsludeild, einmitt fyrir tilstilli Halldórs sem vann ötullega að stækkun starfssvæðis í Þingeyjarsýslu. Samhliða því vann hann í fataverkefni deildarinnar og beitti sér fyrir stofnun Rauðakrossbúðar á staðnum og sinnti neyðarvörnum á svæðinu. Síðar varð hann ritari stjórnar Rauða krossins á Íslandi. Að hans sögn standa fyrstu árin í Holuhraunsgosinu upp úr enda geysimikil aðkoma neyðarvarna á svæðinu.“
Halldór segir viðurkenninguna fyrst og fremst endurspegla sameiginlegt starf margra sjálfboðaliða.
„Ég vissi nú ekkert um þetta fyrr en rétt áður, þegar mér var sagt að ég ætti von á þessu. Ég er stoltur af því að fá þessa viðurkenningu fyrir okkur hér. Þetta byggir á starfi margra.“
Hann segir að öflugt teymi hafi staðið að baki starfinu í gegnum árin.
„Ég fékk að leiða mjög góða sveit af fólki og þetta er viðurkenning á því mikla sjálfboðastarfi, okkur sem vorum virk hér í starfinu. Ég lít á þetta sem viðurkenningu á öflugu starfi hér í deildinni. Ég vona að þessi viðurkenning verði til að efla enn frekar okkar starf hér í sýslunni.“

