Ármann frá Geosea áfram í stjórn Markaðsstofu Norðurlands

Ný stjórn Markaðsstofu Norðurlands var kjörin á aðalfundi stofunnar í vikunni. Frá Norðurlandi vestra barst aðeins eitt framboð, frá Erni Arnarsyni sem hefur setið í stjórn undanfarin ár. Hann taldist því sjálfkjörinn og mun áfram gegna stjórnarsetu næstu tvö ár að minnsta kosti.

Á Norðurlandi eystra bárust tvö framboð, frá þeim Eddu Hrund Skagfield Guðmundsdóttur frá Skógarböðunum og Helgu Nínu Helgadóttur frá SBA Norðurleið. Í kosningu hlaut Helga Nína flest atkvæði og tekur hún því sæti í stjórn næstu tvö ár að minnsta kosti.

Tvö framboð bárust til varamanns, frá Tómasi Árdal hjá Arctic Hotels og Þorbjörgu Jóhannsdóttur frá Höldi. Þar sem bæði höfðu gegnt hlutverki varamanns áður og engin önnur framboð bárust voru þau sjálfkjörin til eins árs.

Ármann Örn Gunnlaugsson frá Geosea sjóböðunum á Húsavík heldur áfram stjórnarsetu, en hann er eini fulltrúi fyrirtækja í Þingeyjarsýslum.

Nýja stjórn skipa:

Viggó Jónsson – Drangeyjarferðir
Sara Sigmundsdóttir – Elding Hvalaskoðun
Ármann Örn Gunnlaugsson – GeoSea
Örn Arnarson – Hótel Laugarbakki
Helga Nína Helgadóttir – SBA Norðurleið
Fulltrúi SSNE: Hlynur Jóhannsson
Fulltrúi SSNV: Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
Varamenn: Tómas Árdal – Arctic Hotels og Þorbjörg Jóhannsdóttir – Höldur