Vinkonurnar Heiða og Ylva sem eru í 3. bekk Borgarhólsskóla nýttu frídaginn á öðrum í Hvítasunnu vel og eru með tombólu í anddyri Kaupfélagshússins og eru að safna fyri hollvini Sundlaugar Húsavíkur sem vinna nú að því að fjármagna sauna aðstöðu við laugina. Hægt er að kaupa miða og ýmislegt smálegt á boðstólum hjá þessum knáu vinkonum.
Sjá einnig:
– Sauna í Sundlaug Húsavíkur: „Nú gefst einstaklingum tækifæri til að leggja söfnuninni lið“
– Taka málin í eigin hendur og safna fyrir sauna klefa í Sundlaug Húsavíkur

