Sauna í Sundlaug Húsavíkur: „Nú gefst einstaklingum tækifæri til að leggja söfnuninni lið“

Söfnunin fyrir sauna aðstöðu við Sundlaug Húsavíkur hefur farið vel af stað en fyrst var greint frá verkefninu hér á vefnum í síðasta mánuði.

Nú hefur verið stofnað formlegt félag og opnaður söfnunarreikningur fyrir átakið og þannig gefst bæjarbúum og velunnurum Sundlaugar Húsavíkur einnig kostur á að leggja sitt af mörkum.

„Það hafa fyrst og fremst verið fyrirtæki og félagasamtök sem hafa verið að styðja við söfnunina, en nú gefst einstaklingum tækifæri til að leggja söfnuninni lið,“ segir Víðir Svansson, einn af forsprökkum söfnunarinnar.

Á sama tíma hefur verkefnið stækkað frá upphaflegum hugmyndum. Í stað eins sauna klefa er nú stefnt að tveimur, bæði hefðbundnum sauna klefa og infrarauðum klefa, auk þess sem fyrirhugað er að setja upp útisturtur og drykkjarbrunn. Markmið okkar er að skapa heildstæða vellíðunaraðstöðu við sundlaugina okkar, þar sem gestir geta notið bæði hita og kælingar, en þessi uppbygging yrði nálægt núverandi köldu potti sem hefur notið mikilla vinsælda sundlaugargesta síðustu ár.

> Sjá einnig: Taka málin í eigin hendur og safna fyrir sauna klefa í Sundlaug Húsavíkur

Söfnunarreikningur verkefnisins:
Sundlaug Húsavíkur hollvinir
Kt. 680426-1550
Reikningur: 0567-14-001550

Ritstjórn Húsavík.com hvert öll til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni fyrir samfélagið okkar.