Breyttur vinnumarkaður – ný tækifæri

Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar á starfsumhverfi opinberra starfsmanna og annarra á þjónustumarkaði. Í kjölfar heimsfaraldursins COVID-19 hefur fjarvinna og verkefnamiðuð störf orðið algengari og varanlegri kostur en áður.
Sú þróun sem skapaðist með aukinni fjarvinnu átti að leiða til fleiri og fjölbreyttari starfa á landsbyggðinni hefur aðeins að litlu leiti gengið eftir. Flest urðu störfin í fjarvinnu til á höfuðborgarsvæðinu.

Hlutverk ríkisins að styðja flutning starfa

Ríkisvaldið gegnir lykilhlutverki í að móta þessa þróun, m.a. sem stefnumótandi aðili og stærsti atvinnurekandi landsins. Með skýrri stefnu getur ríkið liðka fyrir því að starfsmenn geti flutt búferlum á landsbyggðina.
Þetta má gera með því að styðja starfsmenn sem hafa áhuga á búferlaflutningi og flutningi starfa sinna, skapa sveigjanleg vinnuskilyrði og auka möguleika á fjarvinnu. Einnig gæti ríkið auglýst störf án staðsetningar og merkja landsbyggðinni, þegar það er mögulegt.

Ný störf og dreifing stofnana

Auk þess að auðvelda flutning núverandi starfa, stýra störfum án staðsetningar, getur ríkið ákveðið að staðsetja ný störf og jafnvel heilar deildir utan höfuðborgarsvæðisins. Slík stefna getur haft margfeldisáhrif á samfélög, aukið fjölbreytni á vinnumarkaði og mannlíf og styrkt stoðir þeirra byggða sem annars eiga undir högg að sækja.
Í þessu samhengi leggjum við sérstaka áherslu á að horft verði til Raufarhafnar, Kópaskers og Húsavíkur. Þessi svæði hafa burði til að taka á móti fjölbreyttum störfum ríkisins og bjóða upp á gott samfélag fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra, auðlindir og náttúru. Við í Norðurþingi erum klár til samstarfs. Þekkingarnet Þingeyinga hefur búið til skapandi umhverfi til verkefna sem þessa á þessum stöðum og annað gott húsnæði er einnig í boði.

Áhrif á samfélagið

Fjölgun starfa á vegum ríkisins á landsbyggðinni hefur víða haft víðtæk jákvæð áhrif. Hún stuðlar að fjölbreyttari atvinnumöguleikum, eykur stöðugleika og styrkir innviði samfélaganna. Þegar nýir starfsmenn flytja inn í svæði fylgja oft fjölskyldur þeirra, sem hefur áhrif á skólastarf, þjónustu og menningarlíf.

Horft til framtíðar

Ýmis skref hafa þegar verið tekin í þessa átt og ber að þakka fyrir þau, en við getum gert betur. Með markvissari stefnu og auknum vilja til að dreifa störfum ríkisins er hægt að tryggja að ávinningurinn skili sér til fleiri svæða.
Við í Norðurþingi leggjum áherslu á að þessi þróun verði efld og að ríkið taki virkan þátt í að byggja upp fjölbreytt og öflug samfélög um allt land.

Höfundur er Elín Guðmundsdóttir, sem skipar 3. sæti á Lista Samfélagsins í Norðurþingi