Helga Sveinbjörnsdóttir: „Ég ólst upp við að leikhúsið væri draumastaður þar sem töfrar gerðust“

Við Húsvíkingar fengum stórkostlegar gleðifréttir í gærkvöldi þegar ljóst varð að uppfærsla Leikfélags Húsavíkur á Rocky Horror hefði verið valin besta áhugaleiksýning ársins og færi á stærsta svið landsins, sjálft Þjóðleikhúsið, eða eins og hópurinn sjálfur orðar það: „í Þjóðlíkhúsið.“

Örlygur Hnefill settist niður með Helgu Sveinbjörnsdóttur, formanni leikfélagsins í morgun, og hún var enn í skýjunum eftir tilkynninguna í gærkvöldi.

„Við orguðum hér hver á aðra og erum búin að vera hoppandi af gleði síðustu mínútur,“ sagði Helga í samtali við okkur í gær. „Við ákváðum að hittast heima hjá Unni til að vera saman þegar símtalið kæmi. Við erum búin að manifesta þetta í allan vetur og ætluðum okkur að láta þetta gerast, og það tókst.“

Ástríða Helgu fyrir leikhúsinu á sér djúpar rætur

„Ég er alin upp við það að foreldrar mínir væru að starfa í leikhúsinu, og þá sérstaklega pabbi í sviðsmyndasmíði. Reyndar fóru þau bæði á svið saman, allavega í eitt skipti,“ segir hún.

„Ég ólst upp við að leikhúsið væri draumastaður þar sem töfrar gerðust. Ég man oft eftir pabba við eldhúsborðið að hugsa, teikna og búa til líkön að sviðsmyndum. Þær voru margar, sviðsmyndirnar sem hann útfærði.“

„Dýrin í Hálsaskógi voru sett upp leikárið 2015-2016 og var síðasta uppsetning pabba og fyrsta alvöru aðkoma mín að sviðsmynd. Pabbi hét Sveinbjörn Magnússon og lést 2018. Hann er klárlega enn í dag minn lærimeistari og ég fæ margar hugmyndir af því einu að minnast hans.“

Þrátt fyrir þetta tók hún ekki sjálf virkan þátt fyrr en síðar á lífsleiðinni. „Það er ekki fyrr en ég er sjálf komin með uppkomin börn sem ég fer að taka þátt.“

Fyrsta formennskan

Helga er nú í fyrsta sinn formaður félags. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég er formaður í félagsskap, en ég hafði áður verið í stjórn leikfélagsins,“ segir hún.

Ný stjórn tók við í haust með sterka sýn á starfið. „Við vorum ákveðin í því, þessi stjórn sem kom saman í haust, að gera eitthvað stórt og fá stóran hóp með okkur.“ Það markmið varð að veruleika með Rocky Horror.

Metaðsókn í kastalanum

Sýningin sló í gegn á Húsavík. „Við vorum með 20 sýningar og áhorfendur voru um það bil 1850. Stjórnin er alsæl með þessa aðsókn. Við stefndum að 20 sýningum og það stóðst, en áhorfendafjöldinn fór fram úr öllum væntingum.“

Þjóðleikhúsið næst

„Árlega gefst áhugaleikfélögum kostur á að sækja um að vera valin áhugaverðasta leiksýning ársins og við höfum yfirleitt sótt um, en aldrei hlotið þennan heiður fyrr en nú,“ segir Helga.

Nú tekur við nýtt ævintýri. „Við stefnum á að fara í Þjóðleikhúsið í júní. Leikhópurinn, hljómsveitin, búningar og leikmunir fara öll með, en útfærsla á sviðsmynd og tæknimálum verður ákveðin á næstu vikum. Nú förum við að skoða næstu skref.“

Þrátt fyrir stóran sigur í gær er hugurinn þegar farinn að leita fram á við. „Það er gríðarlega gott hljóð í stjórninni,“ segir Helga, „en við höfum samt ekki ákveðið hvað við gerum á næsta leikári. Við vonumst til að líði senn að því að við getum farið í viðhald og endurbætur á húsinu. Það er alveg óljóst hvenær og hvernig það verður gert og hvað hægt verður að gera á meðan.“ Á meðan heldur starfið áfram. „Við höfum hug á að vera með eitthvað ferskt og skemmtilegt í desember og vonandi verða einhver verkefni fram að því.“

Og húsið heldur áfram að lifa með ungu leikhúsfólki bæjarins. „Venju samkvæmt verða líklega 10. bekkur og leikfélag Framhaldsskólans, Píramus & Þispa, með sínar uppsetningar í haust.“

Á bandalagsþinginu lét Leikfélag Húsavíkur einnig til sín taka. „Nokkrir félagar fóru á þingið og voru búin að vera að æfa stuttverkið Latexdrottningin eftir húsvíkinginn Ármann Guðmundsson. Þau sýndu það á stuttverkahátíð sem fram fór samhliða þinginu og það var gríðarlega flott.“

Það verður gaman að fylgjast með Rocky ævintýrinu, sem er enn langt því frá lokið.

Helga var gestur í Sunnudagsviðtalinu á Húsavík.com og er hægt að hluta á spjallið í spilaranum hér að neðan: