Daníel Chandrachur Annisius kom átta mánaða gamall frá barnaheimili í Kolkata til Húsavíkur vorið 1990. Frá barnæsku hefur hann vitað að rætur hans lægju á Indlandi, en lengst af voru upplýsingarnar um uppruna hans aðeins fáeinar línur í ættleiðingarskjölum. Eftir fjögur DNA-próf birtist loks náinn skyldleiki við mann búsettan í Kanada og í sumar flaug Daníel út til að hitta indverskan frænda sinn í fyrsta sinn. Daníel settist niður með Örlygi Hnefli og sagði söguna sína.
Daníel kom til Íslands 4. apríl árið 1990, þá átta mánaða gamall. Hann ólst upp á Húsavík í fjölskyldu með rætur víða um heim, sem hann lýsir sjálfur sem Sameinuðu þjóðum. „Mamma er frá Skotlandi, pabbi frá Þýskalandi, systkini mín voru ættleidd frá Tyrklandi og eiginkona mín er sænsk. Ég er svo ættleiddur frá Indlandi. Ég ólst upp hér í þessum fallega heimabæ okkar og það voru algjör forréttindi að fá að alast upp á Húsavík.“

Foreldrar Daníels voru ávallt opinskáir um ættleiðinguna og uppruna barnanna. Það fór enda ekki fram hjá honum að hann liti öðruvísi út en þau. „Ég held að ég hafi verið um fjögurra ára. Pabbi kemur að mér þar sem ég sit í baðkarinu og er að skrúbba mig með svampi. Hann spyr hvað ég sé að gera og ég segi: „Ég vil vera eins og allir hinir.“ Strax þá var ég greinilega farinn að upplifa að ég væri ekki alveg eins og hin börnin.“
Daníel segir að hann hafi þó aldrei upplifað sig utangarðs í uppvextinum. Á Húsavík voru á þessum árum þó nokkur önnur börn sem höfðu verið ættleidd víðs vegar að úr heiminum. „Samfélagið tók okkur mjög vel. Ég upplifði aldrei kynþáttafordóma hér á Húsavík. Það hjálpaði örugglega líka að við vorum nokkur og fjölskyldan mín talaði alltaf opinskátt um allt saman.“

Var ekki barnið sem átti að koma
Það var þó tilviljun og mikill harmleikur sem varð til þess að Daníel kom til fjölskyldunnar á Húsavík. Foreldrar hans höfðu þegar ættleitt tvíbura frá Tyrklandi og höfðu gengið frá ættleiðingu drengs frá Indlandi. Öll gögn voru tilbúin og það átti aðeins eftir að fara út og sækja drenginn þegar hann lést.
„Það var auðvitað mjög sorglegt. Ég var því eins konar plan B, ef hægt er að orða það þannig. En ég er endalaust þakklátur fyrir að hafa fengið að koma hingað og alast upp í þessari frábæru fjölskyldu og þessu góða umhverfi sem Húsavík er.“
Í æsku velti hann upprunanum fyrir sér eins og flest börn sem vita að þau eru ættleidd. „Sem barn áttar maður sig auðvitað ekki á því hvað maður hefur það gott. En áhuginn á Indlandi og uppruna mínum hefur alltaf verið til staðar.“

Sneri fyrst aftur tvítugur
Daníel heimsótti Indland í fyrsta sinn árið 2009 ásamt eiginkonu sinni, Líu. Þau dvöldu þar í nokkra mánuði, sinntu sjálfboðastarfi og heimsóttu barnaheimilið í Kolkata þar sem Daníel hafði verið fyrstu mánuði ævinnar.
„Ég hafði beðið eftir því að verða aðeins eldri áður en ég færi. Þetta var virkilega góð upplifun. Ég fékk að sjá staðinn sem ég kom frá og kynnast landinu, matnum, tónlistinni og menningunni. Ég er mjög stoltur af indverskum uppruna mínum.“
Hann fór aftur til Kolkata árið 2023, þá með skoskum frænda sínum. Ein helsta ástæða ferðarinnar var að hitta forstöðukonu barnaheimilisins, Anju, áður en það yrði um seinan. Hún hafði starfað þar frá því löngu áður en Daníel kom til Íslands og var sú sem afhenti Jane, móður hans, hann árið 1990. Anju var einnig sú sem gaf Daníel indverska nafnið hans Chandrachur, sem þýðir mánaljós. Á heimilinu störfuðu enn konur sem höfðu annast hann sem ungbarn.

„Það var mjög sérstakt að hitta konurnar sem höfðu passað mig og skipt á mér bleyjum fyrir nærri fjórum áratugum. Barnaheimilið er enn í sama húsnæði og ég var í. Það var þá það næsta sem ég hafði komist uppruna mínum.“
Í ættleiðingarskjölum Daníels segir aðeins að móðir hans hafi verið ung og ógift kona sem vegna félagslegra og efnahagslegra aðstæðna hafi gefið hann til ættleiðingar. Í heimsóknum sínum fékk hann að vita meira um verklagið á þessum tíma. Mæðurnar hefðu sjálfar komið með börnin á barnaheimilið og fengið nokkurra vikna umhugsunarfrest.
„Það skipti mig máli að vita að ég hefði ekki einfaldlega verið tekinn af götunni. Þetta var ákvörðun sem móðir mín tók. Eftir að ég varð sjálfur foreldri fór ég að horfa öðruvísi á hana. Að halda á nýfæddu barni og ákveða að gefa það til ættleiðingar, í stað þess að reyna að ala það upp við flóknar aðstæður, hlýtur að hafa verið gríðarlega erfitt. Ég lít ekki á það sem höfnun heldur sem annað tækifæri sem hún gaf mér í lífinu.“
Fæðing Lunu breytti sjónarhorninu
Áhuginn á eigin rótum varð enn meiri þegar dóttir Daníels fæddist árið 2018. Hún fékk nafnið Luna, sem þýðir tungl og vísar í sterka tengingu við indverska nafn hans.
„Þegar hún fæddist hugsaði ég strax: Þetta er lítill Daníel. Hún var fyrsta manneskjan sem ég hafði nokkru sinni séð sem ég vissi að væri blóðskyld mér. Ég gat horft á hana og séð augun mín og svipbrigði. Það hafði ég aldrei áður getað gert.“
Daníel tekur fram að blóðskyldleiki ráði ekki því hver fjölskylda manns sé. Jane og Matthías séu foreldrar hans og Marta og Ómar systkini hans. Samt séu ákveðnir hlutir sem flestir leiði sjaldan hugann að. Daníel þurfti nýlega að fylla út eyðublað þar sem spurt var um ættgenga sjúkdóma.
„Ég gat hvorki merkt við já né nei. Ég veit það einfaldlega ekki,“ segir Daníel. Og hann segir fleira hafa áhrif á aukinn áhuga hans á upprunanum. „Luna er hálfindversk og þetta er hennar uppruni líka. Eftir að hún fæddist fór ég að hugsa að ég myndi kannski sjá eftir því síðar ef ég reyndi ekki að komast að einhverju meiru, líka fyrir hennar hönd.“
Hann tók því fjögur DNA-próf hjá mismunandi fyrirtækjum. Í fyrstu þremur komu aðeins fram mjög fjarskyldir ættingjar. Daníel var nánast búinn að sætta sig við að komast ekki lengra. Gagnagrunnar fyrirtækjanna ná enn takmarkað til Indlands og leit af þessu tagi getur því verið erfið.
Síðasta prófið breytti stöðunni
„Þá birtist allt í einu maður sem var skilgreindur sem „second cousin“, eða það sem við köllum þremenning. Við deildum um fjórum prósentum af erfðaefninu. Ég vissi ekkert hvað allar þessar tölur og skammstafanir þýddu, svo ég leitaði til fólks sem þekkir vel til erfðafræði og fékk staðfest að þetta væri raunverulegur og töluvert náinn skyldleiki.“

Mánuðir liðu áður en svarið barst
Daníel fékk nafn mannsins í gegnum DNA-þjónustuna og sá að hann bjó í Kanada. Hann sendi skilaboð í gegnum forritið, en fékk ekkert svar. Mánuðir liðu og um tíma virtist þráðurinn ætla að enda þar. Að lokum fann Daníel hann á LinkedIn og tókst að koma á sambandi.
Maðurinn heitir Nilanjan Jana en er kallaður Nilu. Hann er fæddur og uppalinn skammt frá Kolkata. Síðar flutti hann til suður-Indlands, þar sem hann menntaði sig og kynntist eiginkonu sinni, Diplip. Bæði hafa þau starfað við læknisfræðilegar rannsóknir. Þau fluttu til Kanada á tímum kórónuveirufaraldursins og búa nú í Kitchener, skammt frá Toronto.
„Við fórum að senda skilaboð á WhatsApp og áttum strax mjög góð samskipti. Honum fannst sagan mín líka spennandi og hann var algjörlega opinn fyrir því að kynnast mér.
Daníel ákvað að fylgja hjartanu, þrátt fyrir óvissuna. Hann flaug einn til Toronto í byrjun júlí og hélt þaðan til Kitchener og eyddi fimm dögum með Nilu og eiginkonu hans.

„Að sjálfsögðu fer alls konar í gegnum hugann. Hvað ef þetta er ekki eins og ég held? Hvað ef við náum ekkert saman? En við smullum eiginlega strax. Hann er nokkrum árum eldri en ég, talar reiprennandi ensku og það var mjög auðvelt að ræða við hann. Við áttum virkilega góða daga saman.“
Þau fóru í skoðunarferðir, út að borða á nokkra indverska veitingastaði og Nilu eldaði indverskan mat heima hjá þeim.
„Við sátum í stofunni og borðuðum með höndunum. Ég fékk þetta alveg beint í æð. Á sama tíma er hann orðinn mjög vestrænn. Það var líka gott – við gátum bæði tengst í gegnum indverska upprunann og sem tveir menn sem lifa vestrænu lífi.“
Vísbendingarnar benda að móðurættinni
Niðurstaða DNA-prófsins sýnir að Nilu og Daníel eru nánir ættingjar, en ekki nákvæmlega hvernig skyldleikanum er háttað. Þeir telja þó vísbendingar benda til þess að tengingin liggi í gegnum móður Nilu, sem býr enn í nágrenni Kolkata. Hann stefnir á að heimsækja hana á næsta ári og hefur boðið Daníel að koma með.
„Það væri draumur að fara með honum. Hann er alinn upp á svæðinu, talar tungumálið og þekkir samfélagið. Faðir hans kemur frá öðrum hluta Indlands en móðir hans er frá þessu svæði. Eftirnafn hennar kemur einnig fyrir hjá nokkrum fjarskyldum ættingjum í DNA-gagnagrunninum mínum. Þetta eru þó aðeins vísbendingar. Við vitum ekkert með vissu ennþá.“
Ef grunurinn reynist réttur gæti móðir Nilu verið systkinabarn annars blóðforeldris Daníels. Næsta skref væri mögulega að láta taka fleiri DNA-próf, en framkvæmdin er ekki einföld þar sem slík próf eru ekki aðgengileg með sama hætti á Indlandi.
Leit af þessu tagi krefst mikillar nærgætni. Blóðmóðir Daníels gæti hafa verið mjög ung þegar hann fæddist. Hún gæti í dag verið gift og átt fjölskyldu sem veit ekkert um barnið sem hún eignaðist þá.
„Ég get ekki bara komið inn í líf konu nærri fjórum áratugum síðar og spurt hvort hún hafi eignast barn og gefið það frá sér. Það er ómögulegt að vita í hvaða stöðu það gæti sett hana. Þess vegna vil ég fara mjög varlega.“
Trúnaðurinn í kringum ættleiðingarnar hafi verið ætlaður báðum aðilum. Hann hafi verndað ungu mæðurnar, en einnig börnin sem síðar ólust upp við allt önnur efnahagsleg skilyrði á Vesturlöndum.

Mæðgin bæði í leit að rótunum
Jane, móðir Daníels, á ættingja á Toronto-svæðinu sem hún hafði aldrei hitt. Systir föður hennar flutti á sínum tíma frá Skotlandi til Kanada og afkomendur hennar búa þar enn. Daníel hafði samband við fólkið áður en hann hélt utan. Fáum vikum fyrir brottför spurði hann Jane hvort hún vildi slást í för með honum. Hún kom út eftir að hann hafði dvalið fyrstu fimm dagana einn hjá Nilu.
„Við mamma vorum því eiginlega bæði í upprunaleit í sömu ferðinni. Hún var að hitta ættingja sína, suma í fyrsta sinn og aðra eftir meira en hálfa öld og það urðu miklir fagnaðarfundir. Við höfðum heldur aldrei ferðast svona bara tvö saman síðan hún sótti mig til Indlands árið 1990. Það gerði ferðina enn sérstakari fyrir mig að eiga þann tíma með mömmu. Hún vildi auðvitað líka hitta Nilu og það var virkilega fallegt og skemmtilegt að þau skyldu ná að kynnast. Ferðin snerist því um rætur okkar beggja og tengingar sem höfðu legið niðri eða verið okkur huldar.“
Nilu og Diplip hafa lengi dreymt um að sjá norðurljós. Áður en þau fluttu frá Indlandi höfðu þau meira að segja velt fyrir sér Íslandi eða Noregi sem framtíðarheimili, án þess að vita að ættingi Nilu byggi hér á Íslandi.
„Þau komust að því að Ísland og Noregur væru of dýr og enduðu í Kanada, en hafa enn ekki séð norðurljósin. Ég sýndi þeim myndbönd af hvölunum, íslenskri náttúru og Húsavík og þau eru staðráðin í að koma hingað á næstu árum.“
„Hvert skref er sigur“
Daníel gerir sér grein fyrir því að langur tími getur liðið áður en næstu svör fáist. Fyrirhuguð Indlandsferð er aðeins á hugmyndastigi. Hann segist þó ekki lengur líta svo á að leitin hafi aðeins einn mögulegan endapunkt.
„Aðalmarkmiðið er ekki að ég verði að finna blóðmóður mína eða blóðföður. Ég reyni að hafa engar væntingar, því maður veit ekki hvað finnst eða hvað finnst ekki. Þetta er langhlaup og það getur verið eitt skref áfram og tvö aftur á bak. En hvert skref er samt sigur, og stærsti sigurinn hingað til er Nilu frændi minn, ég er búinn að finna hann. Við tengdumst vel og ég er kominn með raunverulegan ættingja og tengilið við svæðið sem ég kem frá. Hvort sem ég finn eitthvað meira eða ekki munu þessi tengsl alltaf vera til staðar. Það eitt og sér er ótrúlega dýrmætt.“


