„Ef einhvern tíma hefur verið þörf fyrir hreyfingu sem byggir á þjónustu, vináttu og friði, þá er það nú“

Soffía Gísladóttir er ekki fyrir að sitja auðum höndum. Á starfsævinni hefur hún gegnt fjölbreyttum stjórnunarstörfum, meðal annars sem félagsmálastjóri og forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra og Austurlandi. Hún hefur einnig tekið sæti á Alþingi, starfað í sveitarstjórn Norðurþings og lagt ótal sjálfboðastundir í þágu samfélagsins.

Í vor kvaddi hún sveitarstjórnarmálin, en líkt og svo oft áður beið stórt verkefni handan við hornið. Í vikunni tók Soffía formlega sæti í stjórn Rotary International, einna stærstu mannúðarhreyfinga heims. Hún er fyrsta íslenska konan sem gegnir embættinu, aðeins þriðji Íslendingurinn frá upphafi og jafnframt fyrsti fulltrúinn sem kemur úr svokölluðu Rótarskoti. Í sunnudagsviðtali Húsavík.com ræðir hún við Örlyg Hnefil um nýja hlutverkið, sjálfboðastarf, landsbyggðina og þá trú sína að samvinna og þjónusta við aðra skipti meira máli en nokkru sinni fyrr.

Fyrst af öllu, innilega til hamingju. Hvernig er tilfinningin að taka sæti í stjórn Rotary International?

„Fyrst og fremst finn ég fyrir miklu þakklæti yfir því trausti sem mér hefur verið sýnt með kjöri í stjórn Rotary International. Þetta er mikill heiður, ekki síst þar sem ég er fyrsta íslenska konan sem tekur sæti í stjórn samtakanna.

Ég er jafnframt þriðji Íslendingurinn sem gegnir þessu embætti. Helgi Tómasson læknir sat í stjórn Rotary International árið 1950 og Ómar Steindórsson úr Rótarýklúbbi Keflavíkur sat þar á árunum 2002–2004.”

Soffía segir að undirbúningurinn hafi staðið lengi yfir. „Rótarý leggur mikla áherslu á leiðtogaþjálfun og undirbúning og frá janúar 2025 hef ég verið í markvissri þjálfun fyrir þetta hlutverk. Á síðasta starfsári sat ég fundi stjórnar sem áheyrnarfulltrúi og því leið mér strax á heimavelli þegar ég tók formlega sæti í stjórninni eftir heimsþingið í Taipei í lok júní.”

Þetta hlýtur líka að vera mikil viðurkenning fyrir Rótarýklúbb Húsavíkur? „Já, þetta er svo sannarlega mikil viðurkenning og mikill heiður, ekki eingöngu fyrir mig heldur líka fyrir Rótarýklúbb Húsavíkur, sem er 86 ára gamall klúbbur, og ekki síður fyrir litla Rótarskotið okkar sem var stofnað árið 2023.

Það er ekki algengt að stjórnarfólk í Rotary International komi úr svo litlum klúbbum og tel ég það fyrir víst að það hafi aldrei áður gerst að stjórnarmaður í Rotary International komi úr Rótarskoti.”

Fyrir þá sem þekkja ekki hugtakið, hvað er Rótarskot? „Rótarskot eru tiltölulega nýtt fyrirbrigði innan Rótarý þar sem starfandi Rótarýklúbbar geta stofnað minni undirklúbba. Þeir geta síðar orðið sjálfstæðir klúbbar eða sameinast aftur móðurklúbbnum, allt eftir því hvernig starfsemin þróast.”

Soffía situr í stjórn fyrir hönd svæða 17 og 18 sem ná yfir öll Norðurlöndin, Grænland, Færeyjar, Álandseyjar, Eystrasaltsríkin, Pólland og Rússland.

„Þetta er fjölbreytt og öflugt svæði með 26 umdæmum, 1.318 Rótarýklúbbum, 67 Rotaract-klúbbum og rúmlega 41 þúsund félögum.”

Auk almennra stjórnarstarfa gegnir hún stöðu varaformanns í nefnd sem fjallar meðal annars um félagaþróun, alþjóðleg verkefni, heimsþing, samskipti, fræðslu og fjölbreytileika innan hreyfingarinnar. Hún situr einnig í nefndum sem vinna að leiðtogaþjálfun og velja fólk í lykilhlutverk innan Rotary International. „Auk þessa mun ég koma fram fyrir hönd heimsforseta Rotary International við ýmis tækifæri og sækja ráðstefnur og viðburði víða um heim.”

Er hægt að hafa áhrif í jafn stóru alþjóðlegu kerfi? „Rótarý er stór alþjóðleg hreyfing og auðvitað verða engar breytingar til fyrir tilstilli eins einstaklings. Styrkur samtakanna felst einmitt í samvinnu, öflugri grasrótarhreyfingu og lýðræðislegri ákvarðanatöku.

Hvort ég geti haft áhrif? Já, sannarlega. Hlutverk mitt er að gæta hagsmuna og styðja þróun þess svæðis sem ég ber ábyrgð á en jafnframt taka þátt í stefnumótun og ákvörðunum sem varða alla alþjóðlegu hreyfinguna.”

Hvað vonastu til að þetta embætti skili fyrir Ísland? „Ég vonast til þess að seta mín í stjórn Rotary International veki áhuga almennings á Rótarý og því mikilvæga starfi sem þar fer fram og hafi þar með áhuga á að ganga til liðs við núverandi klúbba eða stofna sína eigin.”

Hún bendir á að Rótarý hafi þróast mikið á síðustu árum. „Ungt fólk, sem ég veit hefur sterkar hugsjónir varðandi hin ýmsu málefni, getur frekar en að ganga í klúbb sem er þegar til staðar stofnað sinn eigin klúbb með sínum félögum.”

Soffía nefnir sem dæmi að nýr alþjóðlegur íslenskur Rótarýklúbbur, Rotary Arctic, hafi nýlega verið stofnaður og snúist um málefni Norðurslóða.

„Svona er hægt að stofna klúbb í kringum sérstök verkefni eða jafnvel sérstök áhugamál.”

Hvað eru Rótarýklúbburinn og Rótarskotið á Húsavík að vinna að um þessar mundir? „Þessir tveir klúbbar eru í raun einn og sami klúbburinn, en fundar hvor í sínu lagi og vinnur að verkefnum ýmist sameiginlega eða hvor í sínu lagi.”

Rótarskotið vinnur nú að gerð Skúlagötu, þriggja kílómetra sögulegs göngustígs við Skúlagarð sem verður til minningar um Skúla Magnússon fógeta.

„Þetta er spennandi verkefni sem við höfum fengið styrki til að framkvæma og verður tilbúið í lok sumars.”

Á sama tíma vinnur Rótarýklúbbur Húsavíkur að skógræktaruppbyggingu við Kaldbakstjarnir. „Sá reitur verður yndislegur útivistarreitur þegar fram í sækir.”

Soffía segir að reynslan úr stjórnsýslu og samfélagsmálum hafi kennt sér mikilvægi samvinnu. Þegar hún bauð sig fram til sveitarstjórnar árið 2022 lagði hún sérstaka áherslu á þau nýju tækifæri sem fjarvinna skapaði landsbyggðinni. Hún taldi að sveitarfélög gætu laðað að sér fólk sem flytti störfin með sér og skapað þannig nýjan grundvöll fyrir fjölgun íbúa.

Sú hugsun virðist fylgja henni áfram í nýja hlutverkinu; að horfa fyrst og fremst á tækifærin og hvernig fólk getur unnið saman að því að bæta samfélagið.

Næsta stóra verkefni Soffíu verður í Litháen í september þar sem hún stýrir alþjóðlegri ráðstefnu með 400–500 þátttakendum. Samhliða henni fer fram Rotariada, fjölþjóðlegt íþróttamót Rótarýfélaga með um 1.500 keppendum.

Í kjölfarið kemur heimsforseti Rotary International, Yinka Babalola, í heimsókn til Íslands. „Ég hlakka mjög til næstu tveggja ára. Þetta er einstakt tækifæri til að leggja mitt af mörkum á alþjóðavettvangi og um leið vekja athygli á því góða starfi sem Rótarýfélagar vinna á Íslandi og um allan heim. Ef einhvern tíma hefur verið þörf fyrir alþjóðlega hreyfingu sem byggir á þjónustu, vináttu, friði og samvinnu, þá er það nú.”