Katrín Sigurjónsdóttir fyrrum sveitarstjóri Norðurþings hefur verið ráðin í starf sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Alls bárust 15 umsóknir um starfið en sex umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka á meðan á ráðningarferlinu stóð.
Katrín, sem flutti til Húsavíkur er hún tók við starfi sveitarstjóra Norðurþings fyrir fjórum árum, er Borgfirðingur, fædd árið 1968, og hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og stjórnun. Hún hafði áður gegnt stöðu sveitarstjóra hjá Dalvíkurbyggð auk þess að hafa verið kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar. Þá vann hún um árabil við stjórnunar- og útflutningsstörf hjá Sölku-Fiskmiðlun hf. Katrín er stúdent frá Samvinnuskólanum og hefur lokið námi í rekstrar- og viðskiptafræðum frá Háskólanum á Akureyri. Þá hefur hún lokið námi í markþjálfun frá Evolvia og er viðurkenndur stjórnarmaður frá Akademias. Katrín er gift Hauki Snorrasyni og eiga þau þrjú uppkomin börn, segir enn fremur.

