Jarðböðin opnuð á ný eftir umfangsmiklar endurbætur: Fyrsti gesturinn heimamaður

Jarðböðin við Mývatn, sem nú bera nafnið Earth Lagoon, opnuðu dyr sínar að nýju í morgun eftir umfangsmiklar endurbætur. Segja má að um nýtt baðlón sé að ræða, enda hefur öll aðstaða tekið stakkaskiptum og húsakosturinn nær fjórfaldast.

Húsnæði Jarðbaðanna hefur stækkað úr um 1.100 fermetrum í 4.000 fermetra. Framkvæmdakostnaður var upphaflega áætlaður um 4,3 milljarðar króna en Guðmundur Þór Birgisson, framkvæmdastjóri Jarðbaðanna, staðfesti í samtali við Húsavík.com að kostnaður hefði aukist á framkvæmdatímanum, enda um gríðarlega stóra og flókna framkvæmd að ræða.

Mikil eftirvænting hefur ríkt í Mývatnssveit vegna opnunarinnar og var það heimakonan Helga í Garði sem var fyrst til að stíga inn í ný og endurbætt Jarðböð í morgun. Af því tilefni fékk hún veglega gjöf frá Jarðböðunum.

„Það er gríðarleg spenna í Mývatnssveit í dag. Við búum okkur undir stórt sumar. Þetta er mjúk opnun þessa fyrstu viku og við erum að bjóða upp á 25 prósent opnunartilboð til 15. júlí ef bókað er í gegnum heimasíðuna okkar,“ segir Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, mannauðs- og markaðsstjóri Jarðbaðanna, í samtali við Húsavík.com í morgun.

Í dag var jafnframt greint frá því að Bláa lónið hf. hefði samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunumn og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök Baths á Egilsstöðum.

Hægt er að sjá svipmyndir úr nýju böðunum í myndbandinu hér að neðan.