„Fyrsta kúmenhornið krakkar mínir,“ skrifaði Lilja Sigurðardóttir á Facebook síðu sína í gær og hélt uppi kúmenhorni sem margir hafa saknað, en bakaríið Gilið opnaði dyr sínar nú í hádeginu í dag. Það má segja að það hafi verið mikil eftirvænting síðustu daga og baksturlyktin legið yfir miðbænum á meðan á síðusta undirbúningi stóð, en bakarar Gilsins voru mættir til starfa strax klukkan fjögur í nótt til að tryggja að nóg yrði til fyrir gesti á fyrsta opnunardeginum í dag.
„Ilminn af nýbökuðu brauði leggur upp gilið, nýtt bakarí opnar á Húsavík. Til hamingju gott fólk og eigendur. Eftir frábærar og spennandi endurbætur hefur húsnæðið fengið nýtt líf, staðsetningin eftirsóknarverð með útsýni yfir flóann, séð inn í miðbæ og í hjarta bæjarins,“ skrifaði Hjálmar Bogi formaður Völsungs í morgun.
Þegar dyr bakarísins voru opnaðar á hádeginu beið löng röð gesta. Yngstu gestirnir fengu hlýjar móttökur, en Klói, lukkudýr Kókómjólkur, tók á móti börnum og gladdi þau með glaðningi.

Ljósmyndir: Jóhanna Breiðfjörð og Hjálmar Bogi

