Stúlkur úr yngri flokkum Völsungs stóðu sig með miklum glæsibrag á Símamótinu sem fram fór um helgina. Félagið sendi alls fimm lið til keppni úr þremur aldursflokkum.
Keppendur á mótinu voru um 3.200 og er þetta því stærsta knattspyrnumótið sem fer fram á landinu ár hvert. Allir leikir í mótinu fóru fram á völlum á félagssvæði Breiðabliks.
Í 5. flokki kepptu tvö lið Völsunga og unnu bæði sinn riðil. Lið Völsungs í 6. flokki hafnaði í 2. sæti síns riðils, en í 7. flokki enduðu liðin í 3. og 5. sæti.
Þá fengu stelpurnar í 7. flokki sérstaka viðurkenningu þegar þær hlutu Háttvísiverðlaun Símamótsins fyrir framkomu sína innan vallar sem utan.
Þetta er afar glæsilegur árangur hjá Völsungsstelpunum og tilefni til að óska þeim öllum innilega til hamingju.






