Verkalýðsfélag Þórshafnar fagnaði 100 ára afmæli með glæsilegri hátíð

Verkalýðsfélag Þórshafnar fagnaði 100 ára afmæli sínu með glæsilegri hátíð í félagsheimilinu á Þórshöfn í síðustu viku, en félagið var stofnað 16. júlí 1926.

Af því tilefni var boðið upp á hátíðardagskrá þar sem flutt voru ávörp og farið yfir sögu félagsins. Aneta Potrykus formaður og Svala Sævarsdóttir varaformaður rifjuðu upp sögu Verkalýðsfélags Þórshafnar og samstarfsfélögin Framsýn, Þingiðn, Eining-Iðja og AFL sendu fulltrúa til hátíðarinnar og færðu félaginu afmælisgjafir.

Gestum var boðið til kvöldverðar og afmælistertu áður en skemmtidagskrá tók við fram eftir kvöldi.

Nánar er sagt frá afmælinu á vef Framsýnar.