Eldurinn í Drammen ætti að vera áminning fyrir Íslendinga

Mikill eldsvoði sem lagði yfir hundrað íbúðir í rúst í Drammen í Noregi um helgina ætti að vekja Íslendinga til umhugsunar um brunavarnir, sérstaklega í gróðursælum sumarhúsahverfum. Þetta segir Böðvar Tómasson brunaverkfræðingur í samtali við RÚV.

Að sögn Böðvars voru það margir samverkandi þættir sem urðu til þess að eldurinn breiddist svo hratt út. Húsin voru timburhús frá níunda áratugnum, byggð áður en nútímakröfur um brunavarnir tóku gildi, auk þess sem langvarandi hiti og þurrkar höfðu þurrkað bæði húsaklæðningar og gróður í kring.

Böðvar bendir á að brunavarnir séu almennt betri í íslensku þéttbýli, en segir ástæðu til að huga sérstaklega að eldri sumarhúsabyggðum þar sem gróður hefur vaxið mikið í gegnum árin.

„Við erum kannski að byggja einhverja byggð sem uppfyllir reglur þess tíma en síðan vex gróður og við erum að fá aukinn hita og meiri þurrka. Þannig getum við verið að fá aðstæður sem eru hægt og sígandi að verða óásættanlegar,“ sagði Böðvar Tómasson brunaverkfræðingur í samtali við RÚV.

Hann kveðst vona að bruninn í Drammen verði til þess að auka vitund um brunavarnir, ekki aðeins í Skandinavíu heldur einnig hér á landi.