Framleiddu fyrstu 500 kílóin af grænu vetni á Húsavík

Bandaríska nýsköpunarfyrirtækið Syntholene Energy Corp hefur náð mikilvægum áfanga í tilraunaverksmiðju sinni á Húsavík með því að framleiða fyrstu 500 kílóin af grænu vetni í verksmiðjunni.

Tilraunaverksmiðjan, sem hóf rekstur í lok júní á lóð Orkuveitu Húsavíkur við Hrísmóa, er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum sem nýtir jarðvarma beint með háhita rafgreiningu (á ensku SOEC) við vetnisframleiðslu. Verkefninu er ætlað að reyna nýja tækni sem gæti lækkað kostnað við framleiðslu vetnis, sem er lykilhráefni í framleiðslu kolefnishlutlauss flugeldsneytis.

„Við erum að framleiða vetni í dag. Með þessum áfanga höfum við sýnt fram á að kerfið starfar eins og til var ætlast,“ segir Dan Sutton, forstjóri Syntholene. Hann segir að gangsetningu verksmiðjunnar sé nú lokið og næstu mánuðir fari í umfangsmiklar rekstrarprófanir og óháða staðfestingu á afköstum kerfisins.

Samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu sýna fyrstu mælingar að hreinleiki vetnisins sé yfir 99,9% og að raforkunýtni kerfisins sé í samræmi við væntingar. Þó eru þessar niðurstöður enn bráðabirgðaniðurstöður sem eiga eftir að fara í gegnum frekari prófanir og staðfestingu óháðra aðila.

Á næstu mánuðum verður rekstur verksmiðjunnar prófaður við samfelldar aðstæður þar sem meðal annars verður metin orkunýtni, áreiðanleiki, rekstrarkostnaður og samþætting jarðvarmans við vetnisframleiðsluna. Fyrirtækið stefnir að því að birta óháð staðfestar niðurstöður úr prófununum á síðasta fjórðungi ársins.

Eins og Húsavík.com greindi frá við opnun verksmiðjunnar í júní gæti tæknin, ef hún stenst væntingar, orðið grunnur að framleiðslu samkeppnishæfs, kolefnishlutlauss eldsneytis á iðnaðarskala í framtíðinni. Syntholene hefur áður nefnt Bakka við Húsavík sem mögulegan stað fyrir frekari uppbyggingu ef tilraunaverkefnið skilar tilætluðum árangri.