Stefna að því að opna nýja bakaríið fyrir næstu helgi

„Við stefnum á að opna á föstudaginn næsta. Það er aðallega eftir vinna í salnum og lokafrágangur, en við vonumst til að byrja að baka núna um helgina eða á mánudag, bara til að prófa allt,“ sagði Geir Ívarsson þegar blaðamaður Húsavík.com heimsótti hið nýja bakarí í vikunni.

Aðstandendur hins nýja bakarís, sem hefur fengið nafnið Gilið, vinna þessa dagana hörðum höndum að lokafrágangi í veitingasalnum. Að sögn Geirs eru spennandi dagar fram undan þar sem síðustu handtökin eru lögð á nýja bakaríið áður en tekið verður á móti fyrstu viðskiptavinunum, væntanlega á föstudag eða um næstu helgi. Hann sagði að bæjarbúar mættu vænta þess að finna bakstursilm í loftinu næstu daga, þegar þau fara að prófa nýja búnaðinn.