Ótrúlegt baráttuþrek skilaði sér: Völsungur áfram í Lengjudeildinni

Völsungar leika áfram í Lengjudeild karla í knattspyrnu eftir dramatíska lokaumferð í dag. Húsvíkingar þurftu nauðsynlega á sigri að halda gegn Gróttu á Seltjarnarnesi og gerðu sitt með 2–0 sigri.  Fyrir umferðina var Völsungur í fallsæti með 23 stig, einu stigi á eftir Grindavík og tveimur stigum á eftir ÍR. ÍR tryggði sæti sitt með 3–1 sigri á Leikni en Grindavík gerði 1–1 jafntefli við þegar fallið lið Ægis. Þau úrslit þýða að Grindavík fylgir Ægi niður í 2. deild en Völsungur heldur sæti sínu í næstefstu deild.

Niðurstaðan verður að teljast ótrúleg í ljósi þess að Völsungur vann aðeins einn af fyrstu 14 leikjum sínum og virtist lengi vel vera á leið niður. Liðið sneri hins vegar taflinu við og vann sex af síðustu átta leikjum tímabilsins. „Ekki oft sem ritstjóri Græna hersins er orðlaus en hann er það núna. Leyfi þessum myndum að lifa. Lengjudeild karla 2027, sjáumst þar!“ skrifaði stuðningsmannasíðan Græni herinn strax eftir leik.