Þrjátíu félög og samfélagsaðilar kynntu starfsemi sína á opnum kynningardegi sem Þekkingarnet Þingeyinga stóð fyrir á Húsavík í gær. Þar gafst íbúum tækifæri til að kynna sér fjölbreytt félags-, íþrótta- og menningarstarf sem verður í boði í bænum í vetur.
Viðburðurinn var hluti af verkefninu Þau skilja sem vilja, sem hefur það að markmiði að efla þátttöku íbúa í samfélaginu með aukinni menningarmiðlun, íslenskunotkun og tengslamyndun. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði SSNE.
„Við viljum skapa fleiri tækifæri fyrir fólk af ólíkum uppruna til að hittast, kynnast og taka virkan þátt í samfélaginu. Áherslan er á sameiginlegan vettvang þar sem allir íbúar, nýir sem rótgrónir, geta myndað tengsl og fundið sér farveg til þátttöku,“ segir Sunna Rae Isaksen, einn skipuleggjenda viðburðarins.
Gestir gátu gengið á milli kynninga, rætt við fulltrúa félaganna og fengið innsýn í þá fjölbreyttu starfsemi sem samfélagið á Húsavík hefur upp á að bjóða. Markmiðið var jafnframt að auðvelda félögum að ná til nýrra þátttakenda og sjálfboðaliða. Mikill fjöldi leit við á Stéttinni í gær.
„Oft þarf ekki nema eitt gott samtal til að kveikja áhuga hjá einhverjum á að taka þátt, gerast sjálfboðaliði eða hefja nýtt áhugamál. Viðburðurinn sýndi vel hversu öflugt og fjölbreytt félagsstarfið á Húsavík er,“ segir Sunna Rae.


