Á árum áður framkvæmdi Þekkingarnet Þingeyinga kannanir á fylgi flokka í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í Norðurþingi. Þegar Óli Halldórsson sem þá var forstöðumaður fór sjálfur í framboð árið 2014 lagðist sá siður af og ekki hafa verið birtar kannanir í Norðurþingi síðan. En í gær birtist óvart einhverskonar kosningaspá á Facebook síðu Húsavík.com, en það var í formi myndar frá framboðsfundi okkar. Á myndinni mátti sjá alla frambjóðendur sem tóku þátt í kosningakappæðum, en af einhverjum tæknilegum ástæðum var frambjóðandi Ó-listans, Einar Sigurðsson, aðeins hálfur í mynd.
Annar frambjóðandi Ó-listans, Elvar Már Stefánsson, var fljótur að benda á mistökin í Facebook umræðum og spurði í ummælum: „Óskalistinn bara með hálfan mann inni?“
Eins og kunnugt er situr Einar Sigurðsson í þriðja sæti listans, svo hvort þetta þýðir að Óskalistinn sé búinn að tryggja sér fylgi fyrir hálfum fulltrúa, eða tveimur og hálfum, verður að koma í ljós þegar talið verður upp úr kjörkössunum að tveimur vikum liðnum.


