„Við orguðum hér hver á aðra og erum búin að vera hoppandi af gleði síðustu mínútur,“ sagði Helga Sveinbjörnsdóttir formaður Leikfélags Húsavíkur, en rétt í þessu varð ljóst að sýning þeirra hefði verið valin til sýningar í Þjóðleikhúsinu, sem besta áhugaleiksýning ársins á Íslandi.
Stjórnin safnaðist saman heima hjá Unni til að bíða eftir símtalinu og hafði, að eigin sögn, „manifestað þetta í allan vetur.“ Tilkynnt var um valið á hátíðarkvöldverði Bandalags íslenskra leikfélaga í Reykjanesbæ, þar sem Halla Rún Tryggvadóttir tók við viðurkenningunni fyrir hönd félagsins. Í umsögn dómnefndar var meðal annars hrósað metnaði, dirfsku og listrænum gæðum sýningarinnar, þar sem lifandi tónlist, búningar, lýsing og leikmynd sköpuðu eftirminnilega heild.
Leikfélag Húsavíkur stefnir á að setja sýninguna upp í Þjóðleikhúsinu í júní. Nú taka við undirbúningur og skipulagning, en leikhópurinn, hljómsveit, búningar og leikmunir fara í Þjóðleikhúsið, en útfærsla á sviðsmynd og tæknimálum verður ákveðin á næstu vikum. „Nú förum við að skoða næstu skref,“ sagði Helga formaður enn í skýjunum eftir tíðindin.





