Víðir Svansson, Birgitta Bjarney Svavarsdóttir og Harpa Steingrímsdóttir hafa hrundið af stað söfnun með það að markmiði að gefa Norðurþingi sauna klefa til að setja upp við Sundlaug Húsavíkur.
Að þeirra sögn er fjárhagsstaða sveitarfélagsins með þeim hætti að ekki sé gert ráð fyrir slíkri fjárfestingu á næstunni. Því hafi þau ákveðið, í samráði við Norðurþing, að leita til fyrirtækja og einstaklinga um stuðning við verkefnið. Þegar hafa borist vilyrði frá nokkrum fyrirtækjum og verður almenningi einnig gefinn kostur á að leggja sitt af mörkum. Í samtali við Húasvík.com segir Víðir að þau bjóði öll áhugasöm velkomin að leggja þeim lið.
Sauna klefinn er hugsaður sem frístandandi eining við sundlaugina, en allar nauðsynlegar tengingar eru þegar til staðar. Aðstandendur segja mikilvægt að sundlaugin á Húsavík bjóði upp á slíka aðstöðu, enda sé bærinn orðinn einn af þeim síðustu sem ekki hafa komið sér upp sauna klefa með þessum hætti.
Áður var vatnsgufuklefi starfræktur í sundlauginni um árabil, en honum var lokað í kringum árið 2018 og rýmið er nýtt í dag sem fjölskylduklefi.

