Íslandsbanki undirritar nýjan styrktarsamning við Völsunga

Líkt og undanfarin ár hafa íþróttafélagið Völsungur og Íslandsbanki gert með sér samstarfssamning sem hefur það að markmiði að styðja Íþróttafélagið Völsung í íþrótta- og uppeldislegu hlutverki sínu á Húsavík. Einnig er lögð áhersla á að kynjahlutföll þeirra sem njóta styrkja úr samningnum séu jöfnuð.

Samningurinn sem gildir út árið 2027 felur m.a. í sér, að auk árlegs styrks, sem stjórn Völsungs sér um að skipta á milli deilda félagsins, þá veitir Íslandsbanki viðurkenningar þar sem íþróttafólk Völsungs er heiðrað í lok ársins.

Einnig tekur Völsungur að sér umsjón og framkvæmd Mærudagshlaups Íslandsbanka. Hlaupið er haldið á laugardegi um Mærudagshelgi.

„Að styðja vel við æskulýðs- og íþróttastarf skiptir miklu máli fyrir Íslandsbanka og því er vel við hæfi að slíkur samningur sé stærsti einstaki styrktarsamningur útibúsins enda Völsungur öflugur hornsteinn samfélagsins og gegnir bæði mikilvægu uppeldis- og samfélagslegu hlutverki á svæðinu . Í styrktarsamningnum er einnig lögð sérstök áhersla á að jafnréttissjónarmið sé höfð til hliðsjónar við úthlutun styrkja úr samningnum“ segir Helga Dögg útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík.

„Völsungur er gríðarlega þakklátt Íslandsbanka og er þetta samningur sem skiptir félagið miklu máli,“ segir Bergur Jónmundsson formaður Völsungs.