Viðburðaríkt ár hjá Hvalasafninu: „Sátt að skilja við safnið á góðum stað, bæði faglega og fjárhagslega“

Árið 2025 var viðburðaríkt hjá Hvalasafninu á Húsavík, en safnið tók á móti rúmlega 42 þúsund gestum. Safnstjórinn Eva Björk Káradóttir kveður nú safnið eftir sjö ár í forsvari þess.

„Ég kveð Hvalasafnið með þakklæti og ánægju. Ég er stolt af þeirri uppbyggingu og þróun sem orðið hefur á undanförnum árum og sátt við að skilja við safnið á góðum stað, bæði faglega og fjárhagslega, með traustan grunn til framtíðar. Starfið sem safnstjóri hefur verið lærdómsríkt og gefandi. Ég mun sakna starfsins, en sérstaklega vinnufélaga minna, samstarfsins og þess einstaka umhverfis sem Hvalasafnið og Húsavík bjóða upp á. Að fá að vinna með metnaðarfullu fólki að verkefnum sem tengja saman náttúru, vísindi, menningu og samfélag hefur verið afar dýrmætt. Þetta er þó ekki kveðja til frambúðar. Ég mun án efa koma aftur til Húsavíkur og hlakka til að heimsækja safnið, hitta fólk og fylgjast áfram með því góða starfi sem þar er unnið,“ segir Eva. Hún segir árið 2025 hafa verið sérstaklega viðburðaríkt.

Meðal verkefna ársins voru sýningar og útgáfuverkefni á borð við The World Around Whales og Sjávarblámi, auk fræðsluverkefna og viðburða fyrir ólíka aldurshópa. Safnið tók einnig þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi, meðal annars í tengslum við kvikmyndahátíðina Seas and Trees í samstarfi við Ocean Missions og viðburði á sviði umhverfis- og hafmála.

Bókin er útgefin af Hvalasafninu. Hún er vandlega unnin og fagurlega hönnuð, og markar mikilvægt framlag til bókmennta um hvali, vísindi og menningu.
Rannsóknir voru áfram mikilvægur hluti af starfseminni. Starfsfólk safnsins tók þátt í söfnun sýna af strönduðum hvölum í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og Rannsóknarsetur Háskóla Íslands og lagði þannig sitt af mörkum til aukinnar þekkingar á líffræði og ástandi stórhvela.

Eva segir rekstur safnsins hafa gengið vel á árinu. Færri framkvæmdir en undanfarin ár skiluðu auknum rekstrarafgangi, samhliða nauðsynlegum endurbótum og fjárfestingu í aðstöðu sem styrkir faglega starfsemi safnsins til framtíðar. Undir lok árs hlutu verkefni safnsins jafnframt styrki til áframhaldandi uppbyggingar á árinu 2026.