Næsti kafli rokksögu Íslands skrifaður á Húsavík um helgina

Blaðamaður Húsavík.com sat ásamt konu sinni heima á pallinum á föstudagskvöld, skömmu fyrir miðnætti. Skjálfandaflói var spegilsléttur, fuglarnir sungu í trjánum og kyrrðin var nær algjör.

En skyndilega var þögnin rofin.

Kunnuglegt gítarriff ómaði yfir Höfðann og þéttur trommusláttur fylgdi fast á eftir.

Það var ekki um að villast.

Þarna hljómaði Maðurinn með vasaljósið, eitt þekktasta lag hinnar goðsagnakenndu húsvísku hljómsveitar Innvortis.

Hjarta blaðamanns tók kipp. Var eitthvert ungt bílskúrsband að gera atlögu að íslenskri rokksögu? Hafði ný kynslóð ákveðið að covera Innvortis?

En það tók ekki langan tíma að átta sig á því að þarna voru engir amatörar á ferð. Þetta var the real deal.

Forvitnin bar blaðamanninn af stað. Hann elti hljóðbylgjurnar sem bárust frá efri hæð fyrrum áhaldahúss Orkuveitunnar úti á Höfða. Fyrir utan stóðu bílar Innvortismanna svo ekki fór það á milli mála: Innvortis var mætt á æfingu.

Og gleðin endurtók sig svo aftur á laugardagskvöld, að þessu sinni aðeins fyrr um kvöldið.

Engin svör hafa fengist við því hvað sé í undirbúningi. En eitthvað er greinilega að gerast og gerjast.

Hljómsveitin Innvortis var stofnuð árið 1996 og gaf tveimur árum síðar út plötuna Kemur & fer, sem margir Húsvíkingar sem voru unglingar undir aldamót kunna enn utanbókar. Síðar lágu leiðir sveitarmeðlima til annarra verkefna og annarra hljómsveita, áður en þeir komu óvænt saman á ný og tóku upp plötu árið 2012.

Á þessu ári eru þrjátíu ár liðin frá stofnun sveitarinnar. Hvort þessar leynilegu æfingar séu upphafið að tónleikahaldi, nýrri útgáfu eða einfaldlega góð afsökun fyrir gamla félaga til að spila saman á ný skal ósagt látið.

En eitt er víst. Tónarnir sem ómuðu um Höfðann um helgina voru fallegt fyrirheit og ef aðdáendur sveitarinnar fá einhverju um ráðið verður biðin eftir endurkomutónleikum vonandi ekki mikið lengri. Fyrir aldamótaungling var þetta eins og að heyra Bítlana óma óvænt af húsþaki.

Húsavík.com mun fylgjast grannt með framvindunni þessa máls.