Svavar Pálsson, sýslumaður á Norðurlandi eystra og Austurlandi, og áður sýslumaður Þingeyinga, hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Sveitarstjórn samþykkti ráðninguna á aukafundi sínum í gær og tekur Svavar við starfinu 1. október næstkomandi.
Svavar er fæddur og uppalinn á Blönduósi og snýr því aftur til heimabyggðar sinnar eftir rúmlega tvo áratugi í opinberri stjórnsýslu í Þingeyjarsýslum. Svavar lauk embættisprófi í lögfræði árið 1999 og hóf störf hjá sýslumannsembættunum árið 2001.
Hann gegndi embætti sýslumanns og lögreglustjóra á Húsavík frá árinu 2009 og hefur verið sýslumaður á Norðurlandi eystra frá árinu 2015. Frá árinu 2024 hefur hann jafnframt verið settur sýslumaður á Austurlandi. Þá er hann formaður Sýslumannafélags Íslands.
Í tilkynningu frá Húnabyggð segir að með ráðningu Svavars fái sveitarfélagið öflugan stjórnanda með víðtæka reynslu af stjórnsýslu, rekstri og þjónustu hins opinbera. Sveitarstjórn telji að þekking hans, reynsla og sterk tengsl við heimabyggðina muni nýtast vel við áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins.
Eins og Húsavík.com hefur áður greint frá munu öll sýslumannsembætti landsins sameinast í eitt embætti um næstu áramót. Svavar lætur því af störfum nokkrum mánuðum áður en sú breyting tekur gildi.

