Gatanöf prýðir forsíðu ferðakorts Norðurlands í ár

Markaðsstofa Norðurlands gaf nýverið út sitt árlega ferðakort en því er dreift um allan landshlutann og víðar. Kortið sem inniheldur hagnýtar upplýsingar og kort af lanshlutanum er gríðarlega vinsælt meðal ferðamanna og er prentað í tugum þúsunda eintaka.

Að þessu sinni prýðir mynd Gunnars Jóhannessonar af Gatanöf forsíðu kortsins. Nýlega var lokið við gerð göngustígs og upplýsingaskilta að þessum tignarlega kletti sem stendur við Bakkahöfða. Um er að ræða stóra stund fyrir velunnara húsvískrar ferðaþjónustu enda hefur Gatanöf lengi verið talinn meðal efnilegustu staða nágrennisins sem gera megi að vinsælum viðkomustað ferðamanna. Slík viðbót hefur mikil afleidd verðmæti í sér og er þessi áfangi því mikið fagnaðarefni.