Fyrir marga sem ólust upp á níunda áratugnum var Dallas ekki bara sjónvarpsþáttur heldur vikulegur viðburður. Segja má að fáar sjónvarpsseríur hafi náð jafn sterkri fótfestu á Íslandi og sögurnar af J.R. Ewing, Bobby, Sue Ellen og fjölskyldunni á Southfork-búgarðinum sem vöktu áhuga íslenskra sjónvarpsáhorfenda árum saman.
Einn þessara aðdáenda er Húsvíkingurinn Helga Dóra Helgadóttir, sem lét gamlan draum rætast í síðustu viku þegar hún heimsótti sjálfan Southfork Ranch búgarðinn, hið heimsfræga heimili Ewing-fjölskyldunnar.
Helga birti myndir frá heimsókninni á Facebook og leyndi ekki gleðinni:
„Nei sko vá, ég upplifði einn af mínum draumum í dag þegar við fórum á Southfork í Dallas. 🤩 Þið sem eruð 40 plúss munið eftir Dallas-þáttunum. Ó mæ god, þetta var svo skemmtileg upplifun. 🥰“
Í samtali við Húsavík.com segir Helga að fjölskyldan sé um þessar mundir á ferðalagi um Texas.
„Við erum öll fjölskyldan að heimsækja Elvu, dóttur Davíðs, sem býr í Dallas ásamt eiginmanni og tveimur börnum. Við skruppum líka í tvo daga til höfuðborgarinnar Austin og svo eru Óskar Davíð og Davíð Helgi að fara á fótboltaleik á heimsmeistaramótinu,“ segir hún.

