Sjálfvirkum neyðarhringingum úr ökutækjum til Neyðarlínunnar hefur fækkað gríðarlega eftir að slökkt var á 2G- og 3G-farsímakerfum landsins um síðustu mánaðamót.
Samkvæmt frétt RÚV bárust aðeins fimm sjálfvirk eCall-neiðarsímtöl í júní, samanborið við 175 í maí. Að jafnaði hafa slík símtöl verið um 150 á mánuði á síðasta ári.
Talið er að tugir þúsunda eldri bíla á Íslandi séu með eCall-kerfi sem treystir á 2G eða 3G og geti því ekki lengur hringt sjálfkrafa í Neyðarlínuna við alvarlegan árekstur. Ekki er hægt að uppfæra öll ökutæki og í sumum tilvikum getur kostnaður við uppfærslu numið tugum þúsunda króna.
Neyðarlínan segir sjálfvirku neyðarhringingarnar hafa reynst mjög mikilvægar og vonast til að lausn finnist á vandanum.
Ljósmynd: Kabiur Rahman Riyad

